Norðurlandamót Alfons Norðurlandameistari í A flokki ungmenna

  • 6. ágúst 2026
  • Fréttir

Alfons Bergqvist og Bjartur frá Strandarhjáleigu eru Norðurlandameistarar í A flokki ungmenna.

Sænskur pallur í A flokki ungmenna

Síðast á dagskrá í dag voru A úrslit í A flokki ungmenna. Alfons Bergqvist og Bjartur frá Strandarhjáleigu voru þar hlutskarpastir og eru Norðurlandameistarar með 8,45 í einkunn. Í öðru sæti var Alice Ekman og Karri frá Gauksmýri með 8,41 í einkunn og í því þriðja var Ester Östberg á Hátind frá Álfhólum með 8,37 í einkunn.

Kristín Eir Hauksdóttir Holaker og Engill frá Ytri-Bægisá 1 kepptu fyrir Íslandshönd en þau voru í efstu sætum fyrir skeiðið sem tókst ekki hjá þeim í dag og enduðu þau í sjöunda sæti.

Hægt er að sjá dagskrá og ráslista á HorseDay og horfa á mótið í beinni á EiðfaxaTV.

Niðurstöður úr A úrslitum í A flokki ungmenna
Sæti Knapi Hross Land Einkunn
1 Alfons Bergqvist Bjartur frá Strandarhjáleigu Svíþjóð 8,45
2 Alice Ekman Karri frá Gauksmýri Svíþjóð 8,41
3 Ester Östberg Hátindur frá Álfhólum Svíþjóð 8,37
4 Mathilde Løkke Torup Kári frá Korpu Danmörk 8,32
5 Mathilde Hudlebusch Vestergaard Hroki frá Margrétarhofi Danmörk 8,30
6 Alma Jonsson Mói frá Efri-Fitjum Svíþjóð 8,16
7 Kristín Eir Hauksdóttir Holaker Engill frá Ytri-Bægisá I Ísland 7,33
8 Olivia Kasperczyk Már frá Rauðalæk Danmörk 7,30

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link