Norðurlandamót Dagur er Norðurlandameistari í 250 metra skeiði ungmenna

  • 7. ágúst 2026
  • Fréttir
Sænskur sigur í unglingaflokki

Keppni í 250 metra skeiði er nú lokið á Norðurlandamótinu þar sem sprettir númer 3 og 4 fóru fram nú í dag.

Í ungmennaflokki nældi Dagur Sigurðarson á Galbjarti frá Hóli sér í Norðurlandameistaratitill en besti tími þeirra var 23,93 sekúndur. Önnur varð Sara Garðarsdóttir Hesselmann á Herkúles från Knubbo á tímanum 24,31 sekúndur, þau kepptu fyrir Svíþjóð. Í þriðja sætinu varð svo Þórgunnur Þórarinsdóttir á Tófu Þorvardóttur från Stall Vita villan á 24,80 og því brons í hendur Íslands.

Í unglingaflokki var það Vera Elgholm á Dreka från Lind sem sigraði og er Norðurlandameistari en besti tími þeirra var 24,91 sekúnda.

 

Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Dagur Sigurðarson Galbjartur frá Hóli 23,93
2 Sara Gardarsdottir Hesselman Herkúles från Knubbo 24,31
3 Þórgunnur Þórarinsdóttir Tófa Þorvardóttir från Stall Vitavillan 24,80
4 Johanna Kirstine Nielsen Maja fra Skindbjerg 24,95
5 Olivia Agerhill Júlía från Agersta 25,14
6 Vilma Marie Ostergaard Glæsir fra Rist 25,60
7 Kanerva Niemi Sinfónia fra Kaakkola 26,32
Unglingaflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Vera Elgholm Dreki från Lind 24,91
2-3 Tilda Brandes Jara frá Horni I 0,00
2-3 Majken Roström Arfur frá Steinskoti 1 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link