Draumamót Guðmundar Einarssonar
Guðmundur Einarsson og Draumu från Tängmark. Ljósmynd: Cassanda Laikmets/Clfoto
Það var mikil spenna fyrir síðasta sprett í 250 metra skeiði fullorðinna á Norðurlandamóti því þar mættust þeir Kristján Árni Birgisson á Kröflu frá Syðri-Rauðalæk og Guðmundur Einarsson á Draumi från Tängmark. Fyrir lokasprettinn var Kristján í forystu á tímanum 22,94 sekúndur en Guðmundur hafði hraðast farið á 22,96 sekúndu.
Í lokasprettinum mistókst spretturinn hjá Kristjáni en Guðmundur náði frábærum tíma og stendur uppi sem Norðurlandameistari á 22,79 sekúndum, Guðmundur keppir fyrir Svíþjóð. Annar varð Kristján Árni á Kröflu og í þriðja sætinu ríkjandi heimsmeistarinn í greininni, Natalie Fischer á Ímni fra Egeskov á 22,99 sekúndum.
Tveir íslenskir knapar til viðbótar við Kristján tóku þátt í greininni og varð Bergþór Eggertsson í fimmta sæti á Fjalladís frá Fornusöndum á 23,74 sekúndum og Sigurður Narfi á Randver frá Þóroddsstöðum varð í sjöunda sæti á 23,74 sekúndum.
| Fullorðinsflokkur | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Tími |
| 1 | Gudmundur Einarsson | Draumur från Tängmark | 22,79 |
| 2 | Kristján Árni Birgisson | Krafla frá Syðri-Rauðalæk | 22,94 |
| 3 | Natalie Fischer | Ímnir fra Egeskov | 22,99 |
| 4 | Liv Runa Sigtryggsdottir | Baltasar frá Strandarhjáleigu | 23,03 |
| 5 | Beggi Eggertsson | Fjalladís frá Fornusöndum | 23,48 |
| 6 | Daníel Ingi Smárason | Sif från Lindhof | 23,50 |
| 7 | Sigurður Narfi Birgisson | Randver frá Þóroddsstöðum | 23,74 |
| 8 | Tania Højvang Jensen | Glúmur frá Þóroddsstöðum | 23,84 |
| 9 | Wictoria Gren | Kjarval fra Søtofte | 24,08 |
| 10 | Viivi Soimes- Mattila | Mestur fra Lífsvatn | 24,62 |
| 11 | Maren Øyo | Abel fra Røysland | 25,91 |
| 12 | Katie Sundin Brumpton | Kolbeinn från Fögruhlíð | 26,28 |
Draumamót Guðmundar Einarssonar
Endurtók leikinn tíu árum seinna