Norðurlandamót Þessir unnu sér þátttökurétt í A-úrslitum í fjór- og fimmgangi

  • 8. ágúst 2026
  • Fréttir

Julie Christiansen og Djáknar frá Selfossi. Ljósmynd: Cassandra Laikmets

Næst síðasti keppnisdagur Norðurlandsmóts er nú í fullum gangi og í morgun fóru fram hin ýmsu B-úrslit. Hægt er að horfa á Norðurlandamótið í beinni á EiðfaxaTV.

Fimmgangur

Tvenn B-úrstli í fimmgangi fóru fram í og flokki ungmenna var það hin sænska Klara Nydahl á Degi frá Ketilsstöðum sem vann sér þátttökurétt í A-úrslitum með 6,69.

B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Klara Nydahl Dagur frá Ketilsstöðum 6,69
7 Olivia Kasperczyk Tengill frá Hofi 6,64
8 Maren Brandsgård Skaug Aþena fra Skogly 6,05
9 Olivia Agerhill Júlía från Agersta 5,60
10 Maiken Berild Vold Kaspar frá Steinnesi 4,40

Í fullorðinsflokki var það Julie Chritiansen frá Danmörku sem til A-úrslita ríður á morgun á Djáknari frá Selfossi með 7,24.

B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Julie Christiansen Djáknar frá Selfossi 7,24
7 Madelen Johansson Sjarmi från Kristineberg 7,07
8 Steffi Svendsen Bósi frá Húsavík 6,79
9 Laura Nyström Gilda fra Stenkullagård 6,48
10 Elsa Teverud Kolskeggur från Gunvarbyn 6,14

 

Klara og Dagur. Ljósmynd: Cassandra Laikmets

Fjórgangur

Í fjórgangi var keppt í þremur B-úrslitum það er í fullorðins-, ungmenna og unglingaflokki.

Í fullorðinsflokki var það hin sænska Louise Löfgren á Hástigi Rex Depilssyni með 7,10 í einkunn.

B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Louise Löfgren Hástígur Rex Depillsson från Skomakarns 7,10
7 James Faulkner Hálfmáni frá Steinsholti 7,03
8 Sofia Kaber Logi frá Staðartungu 6,73
9 Elise Lundhaug Piltur vom Kronshof 6,67
10 Eline Kirkholt Bengtsen Pistill frá Litlu-Brekku 6,53

 

Louise Löfgren

Í ungmennaflokki var það Amanda Frandsen á Tinnu frá Litlalandi sem keppir til A-úrslita en hæun hlaut 6,97 í einkunn. Elva Rún Jónsdóttir frá Íslandi var þar á meðal keppenda á Kvasi frá Steinnesi og er hlutskipti þeirra 9.sæti með 6,60 í einkunn

B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Amanda Frandsen Tinna frá Litlalandi 6,97
7-8 Gabriella Stenfeldt Johansen Dans frá Álfhólum 6,70
7-8 Paloma Eklund Andersson Tangó från Zimsen 6,70
9 Elva Rún Jónsdóttir Kvasir frá Steinnesi 6,60
10 Pernille Hansen-Christiansen Bakkus fra Grundet Hus 6,33

Amanda Frandsen

Í unglingaflokki var það hin finnska Annette Korhonen sem til A-úrslita ríður á Alísu frá Strandarhjáleigu.

B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Anette Korhonen Alísa frá Strandarhjáleigu 6,07
7 Mia Skavhaug Atgeir frá Margrétarhofi 5,73
8 Lilja Kontio Dásemd frá Traðarholti 5,53

Anette Korhonen

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link