Klara Nydahl og Dagur Norðurlandameistarar ungmenna í fimmgangi
Klara Nydahl Norðurlandameistari í fimmgangi ungmenna á Degi frá Ketilsstöðum. Ljósmynd: Cassandra Laikmets
Úrslitadagur Norðurlandamóts í hestaíþróttum er upp runninn sem að sjálfsögðu er í beinni á EiðfaxaTV en allar upplýsingar, ráslista og dagskrá er hægt að sjá í HorseDay og einnig má sjá dagskrá dagsins hér.
Úrslit í ungmennaflokki í fimmgangi voru spennandi og knapar þar vel hestaðir. Mjótt var á munum á öllum atriðum og baráttan um sigur spennandi. Að loknum öllum atriðum voru þær Klara Nydahl á Degi frá Ketilsstöðum og Palma Sandlau Jacobsen á Búa frá Húsavík jafnar með 6,76 og þurfti því sætaröðun dómara til að skera úr um sigur og þar varð Klara hlutskarpari og því Norðurlandameistari. Þórgunnur Þórarinsdóttir var skammt undan á Tófu Þorvardóttur með 6,69 í einkunn og silfur því niðurstaðan fyrir hana. Kristín Eir Hauksdóttir Holaker á Engli frá Ytra-Bægisá varð fimmta með 6,33 í einkunn.
| Sæti | Keppandi | Þjóðerni | Heildareinkunn |
| 1 | Klara Nydahl / Dagur frá Ketilsstöðum | Svíþjóð | 6,76 |
| 2 | Palma Sandlau Jacobsen / Búi frá Húsavík | Danmörk | 6,76 |
| 3 | Þórgunnur Þórarinsdóttir / Tófa Þorvardóttir från Stall Vitavillan | Ísland | 6,69 |
| 4 | Filippa Gram / Kristall frá Skagaströnd | Danmörk | 6,40 |
| 5 | Kristín Eir Hauksdóttir Holaker / Engill frá Ytri-Bægisá I | Ísland | 6,33 |
| 6 | Rebecca Hesselbjerg Taulborg / Tindra fra Kirstineholm | Danmörk | 5,55 |
Klara Nydahl og Dagur Norðurlandameistarar ungmenna í fimmgangi