Norðurlandamót Andrea og Kristall Norðurlandameistarar unglinga í fjórgangi

  • 9. ágúst 2026
  • Fréttir

Andrea Schmidt Laursen. Ljósmynd: Cassandra Laikmets

Úrslitadagur Norðurlandamóts í hestaíþróttum er upp runninn sem að sjálfsögðu er í beinni á EiðfaxaTV en allar upplýsingar, ráslista og dagskrá er hægt að sjá í HorseDay og einnig má sjá dagskrá dagsins hér.

Í úrslitum unglinga í fjórgangi var það hin danska Andrea Schmidt Laursen á Kristal frá Hákoti sem uppi stóð sem sigurvegari og er Norðurlandameistari árið 2026 með einkunnina 6,80 í úrslitum. Silfrið fór til Michelle Edvall Karlsson á Kinnungi frá Torfunesi með 6,63 í einkunn og brons hlaut Summer Sandlau Jacobsen á Djass fra Engholm með 6,60 í einkunn.

 

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Andrea Schmidt Laursen / Kristall frá Hákoti Danmörk 6,80
2 Michelle Edvall Karlsson / Kinnungur frá Torfunesi Svíþjóð 6,63
3 Summer Sandlau Jacobsen / Djass fra Engholm Danmörk 6,60
4 Liam Billow / Agða från Tängby Svíþjóð 6,40
5 Anette Korhonen / Alísa frá Strandarhjáleigu Finnland 6,20
6 Ella Oxaas-Egge / Hrafnkatla fra Nyberg Noregur 5,90

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link