Amanda og Tinna Norðurlandameistarar í fjórgangi ungmenna
Áfram rúllar úrslitadagur Norðurlandamóts í hestaíþróttum sem er að sjálfsögðu er í beinni á EiðfaxaTV en allar upplýsingar, ráslista og dagskrá er hægt að sjá í HorseDay og einnig má sjá dagskrá dagsins hér.
Í A-úrslitum í fjórgangi ungmenna átti Ísland einn fulltrúa en það var Eva Kærnested á Loga frá Lerkiholti en þau hlutu 6,77 í einkunn og fimmta sætið. Norðurlandameistari er Amanda Frandsen frá Danmörku á Tinnu frá Litlalandi með 7,03 í einkunn.
| Sæti | Keppandi | Þjóðerni | Heildareinkunn |
| 1 | Amanda Frandsen / Tinna frá Litlalandi | Danmörk | 7,03 |
| 2-3 | Saga Berggren / Kolfinnur från Margaretehof | Svíþjóð | 6,90 |
| 2-3 | Tekla Petersson / Óríon frá Lækjamóti | Svíþjóð | 6,90 |
| 4 | Lára Gardarsdottir Hesselman / Álfur från Knutshyttan | Svíþjóð | 6,87 |
| 5 | Eva Kærnested / Logi frá Lerkiholti | Ísland | 6,77 |
| 6 | Óskar Erik Kristjánsson / Kjarkur frá Vorsabæ II | Danmörk | 6,37 |
Amanda og Tinna Norðurlandameistarar í fjórgangi ungmenna