Summer Norðurlandameistari í T2 í unglingaflokki
Úrslitadagur Norðurlandamóts í hestaíþróttum heldur áfram og er sjálfsögðu í beinni á EiðfaxaTV en allar upplýsingar, ráslista og dagskrá er hægt að sjá í HorseDay og einnig má sjá dagskrá dagsins hér.
Eftir hádegi var farið í A úrslit í slaktaumatölti í unglingaflokki en þar var danskur sigur og silfrið fór til Íslands. Summer Sandlau Jacobsen og Djass fra Engholm unnu með 6,62 í einkunn. Í öðru sæti varð Elísabet Benediktsdóttir á Mió fran Anghaga með 6,50 í einkunn og þriðja Julie Forberg á Taktík frá Teland.
| Sæti | Knapi | Hross | Lan | Einkunn |
| 1 | Summer Sandlau Jacobsen | Djass fra Engholm | Danmark | 6,62 |
| 2 | Elísabet Benediktsdóttir | Mió från Änghaga | Island | 6,50 |
| 3 | Julie Forberg | Taktík fra Teland | Norge | 6,08 |
| 4 | Freja Hesselbjerg | Tóra fra Almindingen | Danmark | 0,00 |
Summer Norðurlandameistari í T2 í unglingaflokki