Norðurlandamót Hans-Christian með yfirburðasigur

  • 9. ágúst 2026
  • Fréttir
Niðurstöður úr A útslitum í slaktaumatölti í meistaraflokki

Úrslitadagur Norðurlandamóts í hestaíþróttum er upp runninn sem að sjálfsögðu er í beinni á EiðfaxaTV en allar upplýsingar, ráslista og dagskrá er hægt að sjá í HorseDay og einnig má sjá dagskrá dagsins hér.

Hans-Christian Løwe og Hrannar fra Vivildgård unnu með nokkrum yfirburðum slaktaumatöltið í meistaraflokki. Keppa þeir fyrir Danmörku og hlutu 8,33 í einkunn. Hans hlaut einnig fjaðurverðlaun.

Næst í röðinni var Elin Nilsson og Þokkadís frá Selfossi með 7,58 og þriðja Emilie Saaugaard-Haaning og Vaka fra Nr. Tolstrup með 7,33

Sæti Knapi Hross Land Einkunn
1 Hans-Christian Løwe Hrannar fra Vivildgård Danmark 8,33
2 Elin Nilsson Þokkadís frá Selfossi Svíþjóð 7,58
3 Emilie Saaugaard-Haaning Vaka fra Nr. Tolstrup Danmark 7,33
4 Steffi Svendsen Bósi frá Húsavík Danmark 7,29
5 Knút Lützen Hvinur frá Árbæjarhjáleigu II Færeyjar 6,88
6 Stian Pedersen Adam fra Jakobsgården Norge 6,33

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link