Norðurlandamót Iben Norðurlandameistari í tölt

  • 9. ágúst 2026
  • Fréttir
Jöfn í efstu þremur sætunum í tölti í fullorðinsflokki á Norðurlandamótinu

Síðustu úrslit dagsins og Norðurlandamótinu voru A úrslit í tölti. Það má með sanni segjast að það var mjótt á munum og mjög spennandi A úrslit. Fór það svo að þau enduðu jöfn í 1 – 3. sæti Arnór Dan Kristinsson, Filippa Montan og Iben Katrine Andersen öll með 7,78 í einkunn.

Eftir sætaröðun frá dómurum er það Iben Katrine Andersen á Gideon fra Tommerby Kær sem er Norðurlandameistari í tölti.

Niðurstöður úr A úrslitum í tölti í fullorðinsflokki
1-3 Arnór Dan Kristinsson Dökkvi frá Álfhólum Finland 7,78
1-3 Filippa Montan Lögg fra Slippen Danmark 7,78
1-3 Iben Katrine Andersen Gideon fra Tømmerby Kær Danmark 7,78
4 Laura Midtgård Gimsteinn frá Íbishóli Danmark 7,72
5 Josefin Birkebro Kjarval från Knutshyttan Áfram Islandshästförening 7,67
6 Jóhann Rúnar Skúlason Evert fra Slippen Danmark 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link