Markús Ingi endaði í 16. sæti
The Mongol Derby er að klárast og endaði Markús Ingi Karlsson í 16. sæti ásamt þeim Sven-Erik Gullbekk frá Noregi og Kris Rugloski frá Bandaríkjunum.
Þetta er besti árangur íslendings í kappreiðinni en þær Aníta Margrét Aradóttir og Anna Guðný Baldursdóttir enduðu báðar í 19. sæti þegar þær tóku þátt 2014 og 2025.
Þúsund kílómetrar á tíu dögum
Keppnin er þúsund kílómetra löng þolreið yfir mongólsku steppuna á hálfvilltum hestum. 45 knapar taka þátt og eru um 1.500 hestar notaðir. Keppnin eru tíu dagar, um það bil, og ríða knapar á hálfvilltum hestum og skipta um hest á 35 km. fresti í svokölluðum „Urtuu“ sem eru hestastöðvar sem hirðingafjölskylda rekur. Þegar knapinn kemur í mark hefur hann setið tæplega 30 ólíka hesta, sem allir eru valdir af handahófi.
Riðið er frá klukkan sjö að morgni til sjö að kvöldi. Hægt er að gista í urtuu-stöðvunum eða tjaldað þar sem dagurinn endar. Farangurinn má mest vega 5 kíló í hnakktöskunum og er vigtaður á ráslínunni. Engar svipur, engir sporar, engin merkt leið, engin utanaðkomandi aðstoð og ekkert nesti. Knaparnir rata með GPS-tæki og korti og velja sjálfir leiðina yfir land þar sem engar slóðir liggja.
Hestar þurfa standast dýralæknaskoðanir
Hver hestur er skoðaður af dýralækni áður en knapinn tekur við honum og aftur þegar hann skilar honum. Standist hesturinn ekki skoðun að leggnum loknum tekurðu knapinn út tímarefsingu á meðan hann jafnar sig. Brjótirðu reglur um velferð hrossanna ertu úr keppni — engin áfrýjun. Þá gildir fjöldi tæknilegra reglna sem eiga að tryggja öryggi hesta og manna og jafna, spennandi keppni yfir þúsund kílómetra af óbyggðum. Að öðru leyti er þetta undir knapanum komið. Hvenær á að herða á og hvenær að slaka. Hvort hann ríður á eigin vegum eða slæst í för með öðrum keppendum um stund.
Glæsilegur hópur Íslendinga á leið á Norðurlandamót í Svíþjóð