Njálureið framundan um helgina
Frá Njálureið árið 2025. Ljósmynd: Árni Sæberg
Framundan er hópreið um Njáluslóðir laugardaginn 22. ágúst næstkomandi. Í fyrra tóku tæplega 100 manns þátt og riðu skikkjuklæddir í slóð Flosa og annarra brennumanna á leið til Bergþórshvols. Hermann Árnason leiðir reiðina sem fyrr og viðeigandi brot úr Njálu segja þeir Friðbjörn Garðarsson og Lárus Ágúst Bragason með sínum óborganlega hætti í hverjum áningarstað.
Lagt er upp frá Fljótshlíðarrétt og er tilvalið að geyma hestakerrur við Káragerði þangað sem leiðin liggur í lok dags. Haldið verður af stað um tvöleytið og er æskilegt að þátttakendur mæti til skráningar og skikkjuafhendingar á milli kl. 11:00 og 13:00. Gert er ráð fyrir ferðalokum eftir um fjögurra klst. reið um kl. 18:00 og verður þá sest að snæðingi og góðri skemmtan sem okkar annálaði Hlynur Snær Theodórsson mun leggja grunn að með söng sínum og gítarleik.
Sérstaða Njálureiðarinnar felst ekki síst í því að þátttakendur klæðast skikkjum til að komast í rétta andann, og er skikkja algjört skilyrði fyrir þátttöku. Þeir sem eiga skikkju frá því á síðasta ári fá afslátt af þátttökugjaldi en annars er hægt að kaupa nýja skikkju við skráningu.
Helstu upplýsingar
- Dagsetning 22. ágúst 2026
- Reiðleið Fljótshlíðarrétt – Káragerði (ca. 20 km)
- Leiðangursstjóri Hermann Árnason
- Sagnamenn Lárus Bragason og Friðbjörn Garðarsson
- Verð (með eigin skikkju) 10.000 kr.
- Verð (með nýrri skikkju) 15.000 kr.
Innifalið í verði er reiðin sjálf, sagnamennska, matarveisla og skemmtun.
Skráning fer fram á nýrri heimasíðu Njálufélagsins og nálgast má upplýsingar með því að smella hér.
„Hún er ekkert að gefa mér blítt auga“
Metamót Spretts
Sýnt á Hellu og Hólum
Unga fólkið stóð sig vel á Suðurlandsmóti