Opið gæðingamót fyrir 21 árs og yngri
Þriðjudaginn 25. ágúst verður haldið Gæðingafjör fyrir 21 árs og yngri á félagssvæði Sörla. Hefst mótið kl 18:00.
Keppt verður í Gæðingaflokki í barna og unglinga flokkum. Í ungmennaflokki verður keppt í A og B flokk. Gæðingatölti verður einn flokkur 21 árs og yngri.
„Hvetjum við alla káta krakka að taka þátt í síðasta mótinu sem haldið verður í þeirra aldursflokkum í ár.“
Stefnt er að því að ríða forkeppni og úrslit á þriðjudeginum, en ef skráningin verður mikil gætu úrslit dregist fram á miðvikudag og við byrjum þá á sama tíma kl 18:00.
Skráningu líkur á miðnætti sunnudaginn 23. ágúst. Frí skráningagjöld.
Hér er hægt að skrá í mótið. Ef krakkarnir ætla að skrá sig í fleiri greinar en eina þá þarf að skrá inn aftur fyrir næstu grein.
Stebbukaffi verður að sjálfsögðu opið.
Opið gæðingamót fyrir 21 árs og yngri
„Hún er ekkert að gefa mér blítt auga“
Yfirlitsýning á Rangárbökkum í dag – Hollaröð
Landsþing LH í október