Eiðfaxi auglýsir eftir blaðamanni

  • 28. ágúst 2026
  • Fréttir
Ertu góður penni og með áhuga á hestamennsku?

Eiðfaxi leitar eftir því að ráða einstakling sem hefur brennandi áhuga á hestamennsku og fjölmiðlun.

Við leitum að einstaklingi sem hefur gott vald á íslensku, vinnur sjálfstætt og af vandvirkni, hefur góða samskiptahæfileika, frumkvæði og metnað í starfi.

Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf hjá rótgrónum miðli þar sem tækifæri gefst til að hafa áhrif á þróun fréttamiðlunar um íslenska hestamennsku. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni
  • Skrifa og vinna fréttir og annað blaðamannaefni.
  • Taka viðtöl og afla upplýsinga.
  • Fylgjast með fréttum og samfélagsumræðu.
  • Vinna efni fyrir vef og samfélagsmiðla.
  • Taka þátt í hugmyndavinnu og ritstjórn.
Við leitum að einstaklingi sem
  • hefur gott vald á íslensku máli
  • er forvitinn, gagnrýninn og skapandi
  • hefur gott fréttanef
  • hefur góða þekkingu á íslenskri hestamennsku og áhuga á greininni
  • vinnur vel sjálfstætt og í teymi
  • er nákvæmur og vandvirkur
  • getur unnið undir álagi
  • getur tjáð sig skýrt og af öryggi fyrir framan myndavél.

Umsóknarfrestur er 10. september

Umsóknir, ásamt ferilskrá og stuttri kynningu, og fyrirspurnir sendist á eidfaxi@eidfaxi.is.

Við hvetjum áhugasama með metnað fyrir fréttamennsku og ástríðu fyrir hestamennsku til að sækja um!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link