Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Hestamiðstöðin í Axevalla
Í janúar var staðfest að BYS (Biological University of Applied Sciences) hefði fengið grænt ljós fyrir nýtt tveggja ára tamninganám í íslenskum hestum. Námið verður staðsett við Axevalla hestamiðstöð nærri Skara í Svíþjóð og fyrsti árgangurinn hefur nám nú í haust.
Tveggja ára nám
Námið er tveggja ára YH-nám ætlað þeim sem vilja starfa faglega við frumtamningu, þjálfun og endurmenntun íslenskra hesta. Fram til þessa hefur fólk í sænska íslandshestageiranum þurft að byggja upp færni sína á eigin spýtur og svo þreyta fagpróf sænska íslandshestafélagsins.
„Það hefur aldrei áður verið til ríkisfjármagnað hestaþjálfaranám fyrir íslenska hestinn. Framtíðarsýn okkar hefur alltaf verið að gera leiðina að fagþekkingu aðgengilegri og kerfisbundnari,“ segir Malin Jansson, íslandshestareiðkennari við Axevalla hestamiðstöð.
Námið á Axevalla er blanda af kennslu á staðnum og verklegri vinnu á búgörðum í m.a. Svíþjóð, með áherslu á sjálfbæra tamningu og velferð hesta.
Reiðkennarar frá Hólaskóla
Atli Guðmundsson verður meðal kennara, ásamt m.a. Malin Jansson sem er reiðkennara II og tamningamaður menntuð frá Háskólanum á Hólum en hún er einn af drifkröftunum á bak við verkefnið.
Malin Jansson segir að þau hafi leitað að kennara sem væri bæði menntaður reiðkennari og tamningamaður með mikla faglega reynslu í ræktun og keppni — fyrirmynd fyrir tamningamenn framtíðarinnar. Tengingin við Hólaskóla hafi skipt sköpum, enda vilji þau sameina fræði og verklega reynslu.
„Hún er ekkert að gefa mér blítt auga“
Hetja í 9,01 fyrir hæfileika
Kristín Eir stigahæsti knapi í unglingaflokki