Styðjum við eldhuga erlendis með ráðum og dáð

  • 2. september 2026
  • Fréttir
Hestamennska á Íslandi er háð framgangi í öðrum löndum

Nú þegar keppnis- og sýningatímabilinu á Íslandi er að ljúka er yfir mörgu að gleðjast. Allar keppnis deildir víðsvegar um landið eru troðfullar af áhugsasömum knöpum, þátttaka í mótum hefur sjaldan verið meiri og ekki hafa verið sýnd fleiri hross í kynbótadómi síðan árið 2012. Starfsemi reiðskóla og félagshesthúsa virðist sömuleiðis blómstra víðast hvar og reiðhallir hestamannafélaga eru fullnotaðar allt árið um kring.

Það sama og er upp á teningnum heima á Íslandi blasir þó ekki alltaf við greinarhöfundi á ferðalögum um heiminn. Í starfstengdum ferðum mínum nýverið til Bandaríkjanna, Noregs, Svíþjóðar, Danmerkur og Þýskalands, hefur mér orðið æ ljósara að staðan er önnur utan landssteinanna og mun ekki batna ef ekkert er að gert.

Þar stendur íslenski hesturinn og heimurinn sem um hann hverfist oft höllum fæti. Útbreiðslan er sjaldnast drifin áfram af mörgum heldur byggir hún nánast alfarið á þrotlausu einkaframtaki fárra eldhuga. Þetta eru aðilarnir sem reka reiðskóla, sinna reiðkennslu, fást við útbreiðslu á þekkingu, hestasölu og annarri starfsemi, oft í mikilli samkeppni við önnur hestakyn eða versnandi efnahagsástand heimsins. Í þessu umhverfi skiptir hver einasti aðili miklu máli fyrir íslenska hestinn og framgang hans.

Við hér heima megum ekki taka velgengni hestsins okkar á heimsvísu sem sjálfsögðum hlut eða loka augunum fyrir þeim áskorunum sem félagar okkar erlendis standa frammi fyrir. Margir aðilar erlendis hafa til að mynda lýst yfir áhyggjum við greinarhöfund af því að verð á hestum heima á Íslandi hafi stóraukist á undanförnum árum. Þegar það leggst ofan á háan útflutningskostnað verður það beinlínis fráhrindandi fyrir fólk. Nú þegar eru teikn á lofti um að kaupendur á meginlandi Evrópu séu í ríkari mæli farnir að horfa til annarra landa en Íslands við kaup á keppnis- og reiðhestum.

Sem forystuþjóð og upprunaland verðum við að vera á varðbergi gagnvart þessari þróun og sýna ríka samheldni þvert á landamæri. Nýtum því veturinn sem framundan er til að endurhugsa vinnubrögð okkar og hvernig við getum komið enn betur til móts við þá sem vilja íslenska hestinum allt hið besta.

Við þurfum að leita allra leiða, rétta fram hjálparhönd og horfa til raunhæfra lausna sem létta undir með fólkinu okkar ytra. Þegar við styðjum vel við bakið á þeim sem halda uppi merkjum íslenska hestsins úti í heimi og starfsemi þeirra fær að dafna, þá er það stærsti sigurinn fyrir okkur öll.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link