180 knapar sýndu hross í fullnaðardómi á árinu

  • 3. september 2026
  • Fréttir

Þorgeir Ólafsson og Blíða frá Bergi á Landsmóti. Ljósmynd: Þórhildur Gunnarsdóttir

Þorgeir Ólafsson með flestar sýningar í ár

Kynbótasýningum ársins á Íslandi lauk í ágúst með síðsumarssýningum á Rangárbökkum og á Hólum. Alls voru haldnar 19 sýningar á fimm mismunandi stöðum á landinu, auk kynbótasýningar á Landsmóti.

Mikil gróska er í knapavali á Íslandi um þessar mundir, en alls sýndu 180 knapar hross í fullnaðardómi á árinu. Sú þróun að sífellt fleiri knapar spreyti sig á kynbótabrautinni er afar jákvæð fyrir kynbótastarfið í heild sinni og ber vott um mikla breidd í knapahópnum.

Þorgeir Ólafsson var sá knapi sem sýndi langflest hross, eða alls 145 talsins. Næstur á eftir honum kom Árni Björn Pálsson með 72 og þar á eftir fylgdu þeir Jón Ársæll Bergmann með 53 og Teitur Árnason með 52.

Knapar sem sýndu fimm hross eða fleiri í fullnaðardómi
Knapi Fjöldi
Þorgeir Ólafsson 145
Árni Björn Pálsson 72
Jón Ársæll Bergmann 53
Teitur Árnason 52
Daníel Jónsson 51
Viðar Ingólfsson 51
Þórarinn Eymundsson 47
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir 46
Benjamín Sandur Ingólfsson 45
Elvar Þormarsson 42
Helga Una Björnsdóttir 39
Agnar Þór Magnússon 34
Bjarni Jónasson 34
Guðmundur Friðrik Björgvinsson 31
Hlynur Guðmundsson 31
Ásmundur Ernir Snorrason 29
Jakob Svavar Sigurðsson 22
Hans Þór Hilmarsson 21
Barbara Wenzl 19
Sigurður Vignir Matthíasson 19
Axel Örn Ásbergsson 18
Gústaf Ásgeir Hinriksson 18
Mette Camilla Moe Mannseth 18
Vera Evi Schneiderchen 18
Björn Haukur Einarsson 17
Glódís Rún Sigurðardóttir 17
Helgi Þór Guðjónsson 17
Björg Ingólfsdóttir 15
Ólafur Andri Guðmundsson 15
Brynja Kristinsdóttir 14
Ísólfur Líndal Þórisson 14
Flosi Ólafsson 12
Guðmar Freyr Magnússon 12
Valdís Björk Guðmundsdóttir 12
Erlingur Ingvarsson 11
Elvar Logi Friðriksson 10
Eyrún Ýr Pálsdóttir 9
Þorvaldur Árni Þorvaldsson 9
Ævar Örn Guðjónsson 9
Bergur Jónsson 8
Elín Holst 8
Bylgja Gauksdóttir 7
Hafþór Hreiðar Birgisson 7
Hans Friðrik Kjerulf 7
Kristófer Darri Sigurðsson 7
Páll Bragi Hólmarsson 7
Þorvaldur Logi Einarsson 7
Þórarinn Ragnarsson 7
Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir 6
Hörður Óli Sæmundarson 6
Jóhann Kristinn Ragnarsson 6
Olil Amble 6
Reynir Aðalsteinsson 6
Fredrica Anna Lovisa Fagerlund 5
Herjólfur Hrafn Stefánsson 5
Jóhanna Margrét Snorradóttir 5
Magnús Bragi Magnússon 5
Sara Sigurbjörnsdóttir 5
Vignir Sigurðsson 5

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link