Opið fyrir umsóknir liða í Meistaradeild KS
Undirbúningur fyrir komandi keppnistímabil í Meistaradeild KS í hestaíþróttum er formlega hafinn. Mótanefnd hefur nú fest niður keppnisdaga vetrarins ásamt því að opna fyrir skráningar og umsóknir liða.
Keppnisdagar tímabilsins verða sem hér segir:
- 1. mót: 19. febrúar
- 2. mót: 5. mars
- 3. mót: 19. mars
- 4. mót: 31. mars
- 5. mót: 3. apríl*
- 6. mót: 16. apríl
Sjö lið með öruggt sæti
Alls eiga sjö lið rétt á áframhaldandi þátttöku í deildinni á grundvelli árangurs síns á síðasta keppnistímabili:
- Bústólpi
- Hofstorfan / 550
- Hrímnir / Hestklettur
- Lífland
- Íbishóll
- StormRider
- Þúfur
Ofangreind lið þurfa að staðfesta þátttöku sína fyrir komandi tímabil og tilgreina um leið liðseiganda, liðsstjóra og skipan liðsmanna.
Umsóknarfrestur til 30. september
Einnig er opið fyrir umsóknir nýrra liða sem óska eftir þátttökurétti. Ný lið skulu senda inn umsókn þar sem fram kemur fyrirhuguð liðsskipan og hver sé eigandi liðsins.
Umsóknarfrestur – bæði fyrir ný lið og staðfestingar á sætum núverandi liða – er til 30. september 2026.
Allar umsóknir og upplýsingar skulu sendast á netfangið: ksmeistaradeild@gmail.com
Opið fyrir umsóknir liða í Meistaradeild KS
„Hún er ekkert að gefa mér blítt auga“
Stefnir á árangur með sænska liðið