Skýr átti flest sýnd afkvæmi í ár
Skýr frá Skálakoti og Jakob Svavar Sigurðsson á Landssýningu kynbótahrossa árið 2026 þar sem hann hlaut Sleipnisbikarinn og heiðursverðlaun
Kynbótasýningum ársins á Íslandi lauk í ágúst með síðsumarssýningum á Rangárbökkum og á Hólum. Alls voru haldnar 19 sýningar á fimm mismunandi stöðum á landinu, auk kynbótasýningar á Landsmóti.
Fjölmargir stóðhestar áttu afkvæmi sem mættu til kynbótadóms og hér að neðan má sjá þá stóðhesta sem áttu sex afkvæmi eða fleiri sýnd í ár. Flest þeirra á Skýr frá Skálakoti alls 73 talsins. Næstur á eftir honum er Þráinn frá Flagbjarnarholti með 67 afkvæmi og svo koma þeir með jafnmörg afkvæmi til dóms þeir Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum og Kveikur frá Stangarlæk 1 með 49 talsins.
| Stóðhestur | Fjöldi |
| Skýr frá Skálakoti | 73 |
| Þráinn frá Flagbjarnarholti | 67 |
| Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum | 49 |
| Kveikur frá Stangarlæk 1 | 49 |
| Draupnir frá Stuðlum | 33 |
| Adrían frá Garðshorni á Þelamörk | 31 |
| Hrannar frá Flugumýri II | 29 |
| Viðar frá Skör | 27 |
| Blakkur frá Þykkvabæ I | 23 |
| Pensill frá Hvolsvelli | 19 |
| Spuni frá Vesturkoti | 18 |
| Safír frá Mosfellsbæ | 18 |
| Hannibal frá Þúfum | 17 |
| Óskasteinn frá Íbishóli | 16 |
| Skaginn frá Skipaskaga | 16 |
| Ísak frá Þjórárbakka | 16 |
| Eldjárn frá Skipaskaga | 15 |
| Veigar frá Skipaskaga | 15 |
| Ljósvaki frá Valstrýtu | 13 |
| Glúmur frá Dallandi | 12 |
| Apollo frá Haukholtum | 12 |
| Kjuði frá Dýrfinnustöðum | 12 |
| Skarpur frá Kýrholti | 12 |
| Trymbill frá Stóra-Ási | 11 |
| Dagfari frá Álfhólum | 11 |
| Sólon frá Þúfum | 11 |
| Útherji frá Blesastöðum 1A | 11 |
| Leynir frá Garðshorni á Þelamörk | 11 |
| Loki frá Selfossi | 10 |
| Forkur frá Breiðabólsstað | 10 |
| Gaumur frá Auðsholtshjáleigu | 9 |
| Kiljan frá Steinnesi | 9 |
| Hringur frá Gunnarsstöðum | 9 |
| Organisti frá Horni | 9 |
| Rauðskeggur frá Kjarnholtum | 9 |
| Sigur frá Stóra-Vatnsskarði | 9 |
| Styrkur frá Leysingjastöðum II | 9 |
| Stáli frá Kjarri | 8 |
| Knár frá Ytra-Vallholti | 8 |
| Sjóður frá Kirkjubæ | 8 |
| Jarl frá Árbæjarhjáleigu II | 8 |
| Hreyfill frá Vorsabæ II | 8 |
| Þór frá Stóra-Hofi | 8 |
| Ómur frá Kvistum | 7 |
| Hákon frá Ragnheiðarstöðum | 7 |
| Arion frá Eystra-Fróðholti | 7 |
| Vökull frá Efri-Brú | 7 |
| Dofri frá Sauðárkróki | 7 |
| Fenrir frá Feti | 7 |
| Ölnir frá Akranesi | 6 |
| Brimnir frá Efri-Fitjum | 6 |
| Lexus frá Vatnsleysu | 6 |
| Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum | 6 |
| Vákur frá Vatnsenda | 6 |
| Konsert frá Hofi | 6 |
| Herkúles frá Ragnheiðarstöðum | 6 |
| Sægrímur frá Bergi | 6 |
| Þór frá Torfunesi | 6 |
| Spaði frá Stuðlum | 6 |
| Gljátoppur frá Miðhrauni | 6 |
| Atli frá Efri-Fitjum | 6 |
Hross veiktust á Norðurlandamótinu
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Opið fyrir umsóknir liða í Meistaradeild KS