Úrslitadagur sænska meistaramótsins í gæðingakeppni í beinni!
Síðastliðna daga hefur sænska meistaramótið í gæðingakeppni verið sent út í beinni útsendingu á EiðfaxaTV og eru allir keppnisdagarnir aðgengilegir áskrifendum sjónvarpsstöðvarinnar.
Í dag er úrslitadagur mótsins og hófst hann í morgun klukkan 07:00 að íslenskum tíma og eru dagskrálok rétt fyrir 14:00. Hestaáhugamenn geta því fylgst með sterkri gæðingakeppni sem fram fer í Svíþjóð.
Dagskrá sunnudags (ísl. tímasetningar)
07:00 A-final GK tölt kids
07.30 A-final GK tölt teen
08.00 A-final GK tölt Young rider
08.30 A-final GK tölt senior
09.00 A-final GDK
Hádegishlé
10.15 A-final GDT
10.55 A-final GDYB
11.40 A-final GDB
12.25 A-final GDYA
13.10 A-final GDA
Hross veiktust á Norðurlandamótinu
Opið fyrir umsóknir liða í Meistaradeild KS