Klassi hæst dæmdur á Hedeland
Klassi fra Slippen. Ljósmynd: DI - avl og kåringer
Síðasta kynbótasýning ársins fór fram í Hedeland í Danmörku um síðustu helgi, dómarar voru þau Tom Buijtelaar og Svanhildur Hall. Sextán hross komu fram á sýningunni og þar af voru þrettán þeirra sýnd í fullnaðardómi.
Hæst dæmda hross sýningarinnar var Klassi fra Slippen sýndur af Jóhanni Rúnari Skúlasyni sem er einnig ræktandi og eigandi hestsins. Klassi er 7.vetra gamall stóðhestur undan Garra frá Reykjavík og Köru fra Slippen. Hann er með 8,42 fyrir sköpulag þar á meðal 9,0 fyrir samræmi og 9,5 fyrir prúðleika. Fyrir hæfileika hlaut hann 8,05, klárhestur með 9,0 fyrir tölt, hægt tölt, samstarfsvilja, fegurð í reið og greitt stökk. Aðaleinkunn hans er því 8,18.
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Nagli og Flaumur unnu A og B flokkinn