Styttu haustið með EiðfaxaTV
Haustið er gengið í garð með styttri dögum og kólnandi veðri, en hestafólk þarf svo sannarlega ekki að örvænta. Á streymisveitunni EiðfaxaTV er að finna gríðarlegt magn af vönduðu, skemmtilegu og fræðandi hestaefni sem styttir haustkvöldin.
Öflugu og góðu samstarfi EiðfaxaTV við hina ýmsu aðila er fyrir að þakka að nú hefur tekist að safna saman ótrúlegum fjölda mynda, þátta og viðburða á einum og sama staðnum og er stöðugt verið að bæta við nýju og spennandi efni.
Hvort sem hugurinn leitar í söguleg augnablik, dýrmæta fræðslu eða hápunkta nýliðins keppnistímabils er úrvalið óþrjótandi:
- Gullkistan: Fyrir þá sem vilja rifja upp gamla og góða tíma er Gullkistan algjör fjársjóður sem stækkar stöðugt. Þar má finna fjöldan allan af gömlum Landsmótum, Íslandsmótum, HM, EM og Meistaradeildum, ásamt sögulegum sjónvarpsþáttum, eldri kynbótasýningum og viðtölum við goðsagnir!
- Kvikmyndasafnið og fræðsla: Fyrir þá sem vilja dýpka þekkingu sína eða njóta vandaðra heimildamynda eru þar m.a. nýkomnir kennsluþættir Benedikts Líndal um tamningar og þjálfun, tímamótamyndirnar Úr haga í hendur, Kraftur – Síðasti spretturinn, Fákar, Hrossin frá Kirkjubæ, Í Austudal og fleiri perlur.
- Allar kynbótasýningar ársins: Myndbönd af yfir 1.000 hrossum frá kynbótasýningum ársins hér á landi eru aðgengileg, sem gerir ræktendum og áhugafólki kleift að rýna í kynbótahross sumarsins í rólegheitum.
- Mótasumarið: Öll helstu mót sumarsins 2026 eru komin inn – allt frá Landsmótinu á Hólum og Norðurlandamótinu yfir í Íslandsmót, gæðingamót, úrtökur og stórmót erlendis.
Sláðu tvær flugur í einu höggi með ársáskrift
Rétt er að minna á að þeir sem tryggðu sér aðgang að Landsmótinu á Hólum í gegnum eingreiðslu ársáskriftar hafa fullan aðgang að öllu þessu efni áfram.
Fyrir þá sem enn hafa ekki skráð sig í ársáskrift er upplagt að slá tvær flugur í einu höggi með því að gerast ársáskrifendur núna. Með ársáskrift fæst ekki aðeins strax aðgangur að öllu þessu mikla safni heldur tryggir fólk sér sæti í fremstu röð fyrir komandi tímabil, þar sem boðið verður upp á þétta og spennandi vetrar-, vor- og sumardagskrá, auk nýrrar þáttagerðar sem mun birtast reglulega á veitunni.
Það er því tilvalið að koma sér vel fyrir og njóta þess besta sem hestaheimurinn hefur upp á að bjóða á EiðfaxaTV!
Styttu haustið með EiðfaxaTV
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð