Stærsti núlifandi hestur í heimi
Hugo og einn af eigendum hans. Ljósmynd: Guinness World Records
Fjögurra vetra gamall hestur af Shire kyni hefur verið skráður í heimsmetabók Guinness sem sá lifandi hestur í heiminum í dag sem hæstur er á herðarkamb. Hesturinn heitir Hugo og mælist hann hvorki meira né minna en 199 sentimetrar á herðakamb, ójárnaður.
Í samtali við BBC segir einn af eigendum hans að svo ör vöxtur og stærð krefjist nákvæmrar umhirðu þar sem reglulega koma við sögu dýralæknir, hestanuddari, hnykkjari og tannlæknir, auk þess sem fóðrun hans er vandlega stýrt. Þrátt fyrir stærðina að þá er einnig sagt frá því að Hugo sé einstaklega vinalegur og rólegur risi.
Þótt að Hugo sé nú stærsti lifandi hestur heims nær hann ekki sögulega metinu en það átti hesturinn Sampson sem mældist á sínum tíma 219 sentimetrar á herðarkamb.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH