„Vildi gera frumtamningar svalari“

  • 19. september 2026
  • Fréttir
Rætt við Benedikt Líndal

Benedikt Líndal, tamningameistari, hitti á blaðamann Eiðfaxa á kaffihúsi og ræddi við hann um kennslumyndbönd sín sem nú eru aðgengileg á Eiðfaxa TV, stöðuna í hestamennskunni og mikilvægi þess að gleyma ekki uppbyggingunni og fjölbreytninni í tamningu og þjálfun.

Benedikt býr að Gufuá í Borgarfirði þar sem lífið gengur sinn vanagang. „Það er allt gott að frétta, rólegt og gott. Ég er heima og er að vinna með einhverja þrjá unga hesta í tamningu og svo þrjá hesta sem eru aðeins eldri,“ segir Benedikt spurður um verkefnin þessa dagana. Hann kveðst halda sig við hæfilegan fjölda hesta enda taki hnakkagerðin einnig sinn tíma.

Kennslumyndböndin eldast vel

Kennslumyndbönd Benedikts um tamningu og þjálfun, sem nutu gríðarlegra vinsælda þegar þau komu út, eru nú komin inn á streymisveituna Eiðfaxi TV. Myndböndin eru orðin rúmlega tuttugu ára gömul en fyrri hlutinn kom út um árið 2000 og sá síðari árið 2004. „Ég vildi vanda vel til með fyrra myndbandið og koma því fram sem mig langaði til að kæmi fram,“ rifjar Benedikt upp. „Þá langaði mig líka til að sýna hvert þetta leiddi þegar maður væri kominn með eldri hesta og meira þjálfaða hesta. Maður er náttúrulega bara stoltur af þessu og sér að þetta hefur haft áhrif víða. Það var raunverulega það sem mig langaði til, og fyrir utan það að mig langaði endilega til að gera frumtamningar svalari.“

Benedikt bendir á að oft hafi verið litið svo á að einhver væri „bara“ frumtamningamaður. „Ég fer alltaf í smá óróa við þetta ‚bara‘. Í alvöru talað held ég að við séum öll frumtamningafólk í grunninn sem þróast svo yfir í að vinna líka með eldri hesta.“

Uppbygging og rétt tímasetning lykilatriði

Benedikt fylgist vel með þróuninni í reiðmennsku og hrossarækt. Spurður hvað honum finnist mikilvægast að hafa í huga í nútímaþjálfun nefnir hann fjölbreytni og agaða uppbyggingu: „Það sem kemur fyrst upp í hugann, hvort sem unnið er með unga hesta eða eldri hesta, er að hafa nógu mikla fjölbreytni í þjálfuninni og að það sé alltaf uppbygging til staðar. Ef hún dettur út af einhverjum völdum, að farið sé of snemma í eitthvað eða tímasetningarnar séu ekki réttar, þá tapar maður hestinum fljótt og þá skilar þetta sér ekki. Það þarf alltaf að vera tímasett rétt, hvort sem verið er að leggja áherslu á vinnu eða hvíld.“

Aðspurður lýsir Benedikt yfir mikilli ánægju með tilkomu Eiðfaxa TV og þá miklu heimildavinnu sem þar fer fram. „Mér finnst þetta geggjað og bara takk fyrir það! Gullkistan þarna inni er dýrmæt og frábær. Þetta er eins og gott bókasafn þar sem maður gengur að hlutunum vísum,“ segir Benedikt Líndal að lokum.

Við hvetjum alla till þess að horfa á myndirnar hans Benna á EiðfaxaTV en þær eru aðgengilegar á íslensku, ensku, þýsku og sænsku.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link