Konráð Valur og Kastor á toppi stöðulista ársins í 250m skeiði
Konráð Valur og Kastor á Landsmóti í sumar. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir
Á vefsíðu FEIF hefur stöðulisti ársins 2026 (e. annual ranking) í 250 metra skeiði (P1) verið birtur. Árslistinn byggir á tveimur bestu tímum hvers pars á yfirstandandi keppnistímabili (1. janúar til 1. október 2026).
Efstir á árslistanum að þessu sinni eru þeir Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk með meðaltímann 21,715 sekúndur. Þeir eru eina parið á listanum sem nær meðaltíma undir 22 sekúndum á árinu, en bestu tveir tímar þeirra voru 21,25 og 22,18 sekúndur.
Í öðru sæti sitja Sigurður Sigurðarson og Tromma frá Skúfslæk með meðaltímann 22,110 sekúndur (21,89 og 22,33). Í þriðja sæti fylgja svo fast á hæla þeirra Gústaf Ásgeir Hinriksson og Piltur frá Sturlureykjum 2 með 22,120 sekúndur, en þeir hlupu á 22,03 og 22,21 sekúndum.
Góðir tímar í ár
Íslenskir knapar skipa þrjú efstu sætin en í 4. sæti kemur heimsmeistarinn frá Danmörku, Natalie Fischer á Ímni fra Egeskov, með 22,125 sekúndur – aðeins fimm þúsundustu úr sekúndu á eftir Gústafi og Pilti.
Árni Björn Pálsson og Þokki frá Varmalandi skipa 5. sætið með meðaltímann 22,325 sekúndur (22,29 og 22,36). Daníel Ingi Smárason og Sif från Lindhof fylgja í 6. sæti (22,340 sek.) og svissneski knapinn Ladina Sigurbjörnsson-Foppa kemur þar á eftir í 7. sæti á Losta frá Ekru (22,350 sek.), en hún á einnig hest í 10. sæti, Einingu frá Einhamri 2. Guðmundur Einarsson á Draumi från Tängmark er í 8. sæti og Johanna Kirstine Nielsen á Maju fra Skindbjerg vermir 9. sætið.
Topp 10 á stöðulista ársins í 250m skeiði (P1):
- Konráð Valur Sveinsson / Kastor frá Garðshorni á Þelamörk (IS) – 21,715 sek. (21,25 ; 22,18)
- Sigurður Sigurðarson / Tromma frá Skúfslæk (IS) – 22,110 sek. (21,89 ; 22,33)
- Gústaf Ásgeir Hinriksson / Piltur frá Sturlureykjum 2 (IS) – 22,120 sek. (22,03 ; 22,21)
- Natalie Fischer / Ímnir fra Egeskov (DK) – 22,125 sek. (22,05 ; 22,20)
- Árni Björn Pálsson / Þokki frá Varmalandi (IS) – 22,325 sek. (22,29 ; 22,36)
- Daníel Ingi Smárason / Sif från Lindhof (SE) – 22,340 sek. (22,18 ; 22,50)
- Ladina Sigurbjörnsson-Foppa / Losti frá Ekru (CH) – 22,350 sek. (22,27 ; 22,43)
- Guðmundur Einarsson / Draumur från Tängmark (SE) – 22,440 sek. (22,13 ; 22,75)
- Johanna Kirstine Nielsen / Maja fra Skindbjerg (DK) – 22,480 sek. (21,91 ; 23,05)
- Ladina Sigurbjörnsson-Foppa / Eining frá Einhamri 2 (CH) – 22,650 sek. (22,53 ; 22,77)
A landsliðshópur Íslands