„Hafði aldrei látið mig dreyma um þetta“

  • 23. september 2026
  • Fréttir

Tinni og Árni Björn á Landsmóti árið 2026. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

Kynbótahross ársins - Tinni frá Árdal

Alls voru sýndir 131 fimm vetra gamlir stóðhestar í fullnaðardómi á Íslandi á árinu. Meðaltal aðaleinkunnar þeirra í hæsta dómi er 8,12 og alls hlutu 87 þeirra einkunnina 8,00 eða hærra í aðaleinkunn og 1. verðlaun.

Hæst dæmdi stóðhestur ársins í þessum aldursflokki er Tinni frá Árdal sem hlaut 9,10 í aðaleinkunn á Landsmóti og er jafnframt hæst dæmdi fimm vetra stóðhestur allra tíma. Hann hlaut fyrir sköpulag 9,04 og þar á meðal m.a. einkunnina 10,0 fyrir háls, herðar og bóga og er hann fyrsta hrossið sem hlýtur þá verðmætu einkunn í kynbótadómi. Fyrir hæfileika hlaut hann 9,13 þar á meðal 9,5 fyrir tölt, samstarfsvilja og fegurð í reið. Það var Árni Björn Pálsson sem sýndi Tinna í sumar og þjálfaði síðastliðinn vetur.

Ræktendur og eigendur Tinna eru þeir Ómar Pétursson og Henrik Falster-Hansen. Eiðfaxi hafði samband við Ómar sem fræddi okkur nánar um hestinn.

Tinni er undan Kveik frá Stangarlæk 1 og Þrumu frá Árdal. „Það sem heillaði mig við Kveik var hvað hann var sjálfberandi og gekk mikið upp í loftið, með stórum, rólegum skrefum,“ segir Ómar spurður um hugsunina á bak við pörunina. „Mig langar almennt í svoleiðis hestgerð og mér fannst einfaldlega gríðarlega áhugavert að blanda honum og Þrumu saman.“

Spurður hvort einhver mikil saga liggi að baki nafninu segir Ómar svo ekki vera: „Þetta var bara hugmynd. Hann þurfti að byrja á T, en hestar undan Þrumu hafa allir fengið T sem upphafsstaf.“

Rólegur og fallegur í uppeldi

Þótt Tinni sé nú búinn að skrá í sögubækurnar fyrir glæsileika og gæði var hann ekkert að auglýsa það í uppeldi. „Hann var fallegt folald en ekkert sérstaklega áberandi. Ég tek tryppin inn undir vor þegar þau eru veturgömul og þá sá ég strax að þetta var myndarhestur. Það var spennandi framhluti á honum og skrefið áhugavert þegar hann var rekinn um í reiðaðstöðunni. Svo var hann bara mjög venjulegt tryppi í uppvextinum sem fór um á öllu án þess að sýna nokkuð sérstaklega spennandi. Svona eru reyndar öll tryppin undan Þrumu; ekki merkileg á að horfa í uppvextinum, voða róleg og fara um á öllu.“

Tinni frá Árdal á myndinni er hann veturgamall

Allt í gangi og opið skeið

Þróunin varð hins vegar hröð þegar tamningin hófst og styrkurinn fór að aukast. „Tinni var líka bara venjulegt tryppi í upphafi tamningar, sýndi ekki mikið, var þægur og meðfærilegur. Að frumtamningu um haustið þegar hann var þriggja vetra komu Húnvetningarnir Alda Björnsdóttir og Helga Rún Jóhannsdóttir að málum ásamt Bjössa vini mínum í Neðri-Hrepp, sem var svo með hann um veturinn á fjórða vetri. Ég man að það var í lok janúar að Bjössi býður mér að koma og skoða hestinn. Þá var hann farinn að sýna þetta mikla skref og það sem var sérstaklega gaman að sjá var að það voru allir fætur í gangi, líka mjög skemmtilegt afturfótaskref.“
Ómar segir að það hafi tekið tíma að ná jafnvægi á svo miklu skrefi. „Við fórum samt með hann í dóm fjögurra vetra sem gekk mjög vel miðað við jafnvægið og styrkinn á þeim tíma. Árni Björn tekur svo við hestinum síðasta haust og hann þróaðist jafnt og þétt allan veturinn. Það var ekkert átt við skeiðið fyrr en um vorið, en það er eins og í móðurinni: opið og öruggt frá upphafi þegar eftir því var leitað. Þeim sem komu að tamningu og þjálfun eru færðar miklar þakkir fyrir þeirra frábæra starf.“

Tinni í sköpulagsdómi fjögurra vetra í hann heldur Björn Haukur Einarsson

Klökkur yfir árangrinum

Að ná slíkum sögulegum árangri í kynbótabrautinni var ólýsanleg stund fyrir ræktandann. „Það var gríðarlega gaman fyrir hobbyræktanda með litla ræktun að fylgjast með honum í dómnum í Hafnarfirði og svo auðvitað á Landsmótinu. Hjartað tók nokkur aukaslög þegar það kom í ljós að hann hafði fengið 10 fyrir háls, herðar og bóga og það var ekki laust við að maður hafi klökknað. Að hafa ræktað hest með 9,10 í aðaleinkunn hafði ég aldrei látið mig dreyma um, og hesturinn þar að auki einungis fimm vetra gamall. Það er líka mjög gaman að finna áhugann á hestinum og jákvætt umtal. Við eigendurnir og öll sem komum að ræktun Tinna erum rífandi stolt og montin af honum.“

 

Framtíðarplönin með þennan hæst dæmda fimm vetra stóðhest sögunnar eru skýr: „Árni Björn heldur áfram með hann í vetur og planið er bara að halda áfram að þjálfa hestinn og byggja hann upp.“

Verðlaunaafhending á Landsmóti. F.v. Ólafur Þórisson formaður Búgreinadeildar hrossabænda, Ræktendurnir Ómar Pétursson og Henrik Falster Hansen. Árni Björn situr á Tinna. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

10 hæst dæmdu 5.vetra stóðhestar ársins
  1. Tinni frá Árdal – 9,10
  2. Þróttur frá Hæli – 8,82
  3. Hengill frá Hestkletti – 8,75
  4. Huginn frá Neðra-Seli – 8,65
  5. Árvakur frá Egilsstaðakoti – 8,61
  6. Frakkur frá Flagbjarnarholti – 8,56
  7. Kopar frá Laugarbökkum – 8,56
  8. Grásteinn frá Egilsstöðum 1 – 8,54
  9. Undri frá Velli II – 8,54
  10. Kaleó frá Reykjadal – 8,53

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link