Styttist í Stóðhestaveislur
Hin árlega stórsýning stóðhestanna, Stóðhestaveislan, verður haldin á tveimur stöðum líkt og í fyrra, í Svaðastaðahöll á Sauðárkróki lau. 31. mars nk. og í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli lau. 7.apríl nk.
Tugir stóðhesta munu koma fram á hvorri sýningu fyrir sig, bæði yngri og eldri hestar, stórstjörnur og nýstirni í bland. Að venju verða höfðingshestar heiðraðir á sýningunum, fyrir norðan verður það Gustur frá Hóli og fyrir sunnan Þorri frá Þúfu.
Kynning á þeim hestum sem fram koma hefst á næstu dögum, en Stóðhestaveislurnar hafa notið mikilla vinsælda hingað til og verið góð skemmtun. Hestamenn norðan og sunnan heiða eru því hvattir til að merkja við á dagatalinu og tryggja sér miða á þessa viðburði.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH