Lifandi lýsing – Artemisia leiðir eftir forkeppni
Tæknileg bilun veldur því að útsending frá Meistaradeild liggur nú niðri. Unnið er að viðgerðum.
Hér er lifandi lýsing:
Dómarar eru heilt yfir nokkuð sammála, þó brugðið hafa fyrir frávikum í nokkrum sýningum. “Dómarar standa sig yfir höfuð prýðilega. Skekkjumörk eru innan marka,” segir Hörður Hákonarson yfirdómari.
Artemisia og Óskar brugðust áhorfendum ekki, æðifögur sýning skilaði þeim 7,77 í lokaeinkunn og efsta sætið í úrslit.
Áhorfendur virtust hins vegar vera í liði Johns Kristins Sigurjónssonar í kvöld og fögnuðu á meðan hann sýndi stóðhestinn fríða Tón frá Melkoti og uppskáru þeir 7,63, sömu lokaeinkunn og töltgyðjurnar Sara Ástþórsdóttir og Díva frá Álfhólum og eru þau því jöfn inn í úrslit í 3.-4. sæti.
Jakob Svavar Sigurðsson lauk forkeppninni með kröftugri sýningu á Árborg frá Miðey – 7,67 fengu þau í lokaeinkunn og annað sæti.
- Artemisia Bertus Hrímnir Óskar frá Blesastöðum 1A 7,77
- Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Árborg frá Miðey 7,67
- Sara Ástþórsdóttir Ganghestar / Málning Díva frá Álfhólum 7,63
- John Kristinn Sigurjónsson Hrímnir Tónn frá Melkoti 7,63
- Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Smyrill frá Hrísum 7,43
- Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Norður-Götur Sveigur frá Varmadal 7,30
- Lena Zielinski Auðsholtshjáleiga Njála frá Velli II 7,20
- Eyjólfur Þorsteinsson Lýsi Háfeti frá Úlfsstöðum 7,10
- Sigurður Vignir Matthíasson Ganghestar / Málning Lómur frá Langholti 7,03
- Ólafur Ásgeirsson Spónn.is Sædynur frá Múla 6,93
- Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Bláskjár frá Kjarri 6,87
- Guðmundur Björgvinsson Top Reiter / Ármót Gaumur frá Dalsholti 6,87
- Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter / Ármót Hrókur frá Flugumýri II 6,80
- Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Glefsa frá Auðsholtshjáleigu 6,73
- Sigurður Sigurðarson Lýsi Dreyri frá Hjaltastöðum 6,57
- Viðar Ingólfsson Hrímnir Vornótt frá Hólabrekku 6,20
- Ævar Örn Guðjónsson Spónn.is Liba frá Vatnsleysu 6,17
- Sylvía Sigurbjörnsdóttir Ganghestar / Málning Þórir frá Hólum 6,13
- Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Njáll frá Friðheimum 6,00
- Elvar Þormarsson Spónn.is Gráða frá Hólavatni 5,93
- Eyvindur Mandal Hreggviðsson Auðsholtshjáleiga Hersveinn frá Lækjarbotnum 5,80
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH