Temja slysafang undan Skýr frá Skálakoti

  • 28. október 2026
  • Fréttir

Fjölskyldan í Ási II ásamt Steinari frá Stíghúsi. Myndir úr einkasafni.

Ás II: Trippin og allt milli himins og jarðar (og alla leið upp til himna)

„Við Hannes áttum held ég ekki að eignast land. Við erum algjörlega ræktunarsjúk!“

Á þeim orðum hefst samtal okkar Ástríðar Magnúsdóttur (Ástu) og með fylgir hlátur af bráðsmitandi tegund sem kitlar mig að innan. Ástæða samtalsins er að forvitnast um frumtamningar haustsins.

Ásta í Ási og kiðlingarnir.

Allur árgangurinn í dóm

„Einhvern veginn fór þetta úr tveimur til fjórum folöldum á ári í þrettán! Það er árgangurinn núna. Í sumar gat ég sagt að allur árgangurinn hefði farið í dóm – ég get ólíklega gert það aftur.“

Já, í vor og sumar fóru öll fjögurra vetra trippin frá Ási í dóm; þau Hergils, Elenóra og Eldveig. Hryssurnar fóru báðar í fyrstu verðlaun, sýndar sem klárhryssur. Geri aðrir betur! Þau Ásta og Hannes Brynjar Sigurgeirsson eru reyndar engir nýgræðingar í hrossarækt þótt ung séu að árum. Fjölskyldan að Ási II bjó áður í Hafnarfirði og kenndi þá hrossin við Varmaland í Skagafirði, þar sem Hannes er fæddur og uppalinn. En hvað með Ástu, hvaðan kemur hún?

Viktoría Huld sýnir Írisi frá Ási II í fullnaðardóm síðasta sumar, þá 13 ára gömul.

„Ég er úr bænum nefnilega, sem skýrir líklega hvers vegna ég er ennþá svona dýrasjúk. Hannes fékk kannski meiri útrás fyrir þessa hluti í barnæsku. Hann er því svona aðeins praktískari. Skepnurnar þurfa að hafa einhvern lágmarks tilgang,“ segir Ásta og hlær. Til tals berst ferhyrndur lambhrútsafturkreistingur sem þær mæðgur heyja tilvistarbaráttu fyrir um þessar mundir. Ásta finnur þannig liðsstyrk í börnunum á bænum, þeim Viktoríu Huld (13 ára), Kötlu Dís (10 ára), Ellý (10 ára fósturdóttur), Antoníu (9 ára fósturdóttur) og Brynjari Bjarma (5 ára). Þær Viktoría Huld og Katla Dís hafa síðustu ár staðið í fremstu röð í keppni í barnaflokki, þá meðal annars með þá Þin frá Enni (Viktoría Huld) og Sigurpál frá Varmalandi (Katla Dís).

Viktoría Huld og ferhyrndi afurkreistingurinn.

„Við höfum verið svo lánsöm að rækta nokkra góða keppnishesta, meðal annars Liljar, Eldon og Sigurpál frá Varmalandi.“

Ég inni Ástu eftir nafninu Sigurpáll. Er það í höfuð móðurinnar?

„Já, þeir heita allir eitthvað -páll undan henni Pálu sem hefur verið okkar farsælasta ræktunarhryssa. Markmiðið er að koma henni í heiðursverðlaun næsta sumar.“

Sigurpáll og Katla Dís.

Sigurpáll er fyrsta afkvæmi Pálu en í afkvæmahópnum má einnig finna Tinna Pál og svakalega sterkan tveggja vetra fola; Jón Pál. En hvaðan kemur Pála? Svarinu fylgir skemmtileg forsaga:

Naustanesræktunin

„Þorbjörg Gígja ræktaði og átti hana Ýr frá Naustanesi, svakalega góða Andvaradóttur. Undan henni var Rá frá Naustanesi, brúnblesótt, hágeng hryssa sem við sáum auglýsta fyrir mörgum árum. Ég hringdi strax í Þorbjörgu Gígju sem var til í að láta hana fyrir lítið því hún væri svolítið sérstök og knapinn sem væri með hana hefði verið í einhverjum vandræðum. Við keyptum hana og sendum beint norður svo við skoðuðum hana ekkert. Það kom svo síðar í ljós að hún hafði verið bitin í bakið og var mjög bólgin. Eftir að hún jafnaði sig var þetta bara algjör gæðingur og svona upphafið að þessu.“

Rá frá Naustanesi

Undan Rá eru meðal annars þau Liljar, Eldon, Jana og Rúbín, öll í fyrstu verðlaunum. Eftir að Rá hafði heillað þau Hannes fóru þau að skoða betur þessa ræktun frá Naustanesi. Þegar tvær Þristsdætur voru síðar auglýstar, önnur undan Ýr frá Naustanesi (móður Ráar), gat Ásta ekki setið á sér.

„Þær voru báðar fjögurra vetra, akfeitar og agalegar, bara úti í haga, svo ég gat fengið þær á 350 þúsund saman. Við vorum ung og staurblönk þarna en ég var alveg ákveðin, svo ég fór og fékk lánað hjá pabba fyrir kaupverðinu!“ segir Ásta og nú hlægjum við báðar. „Önnur þessara hryssa var Pála frá Naustanesi sem við tömdum og endaði með 9,5 fyrir tölt.“

Ásta segir þau Hannes hafa dottið í lukkupottinn við að kynnast þessum hrossum. Svo fór að Þorbjörg Gígja gaf þeim að lokum móðurina, Ýr frá Naustanesi. Nú standa þær í stafni ræktunarinnar dætur hennar tvær, Pála og Rá.

„Við höfum stundum verið svo ótrúlega heppin að ég hef þá gömlu vinina grunaða, Jón á Vatnsleysu og Sigurbjörn í Langhúsum, afa Hannesar, um að vera eitthvað með puttana í þessu.“

Jón á Vatnsleysu

Ásta er hugsi um stund líkt og hún rifji upp gamla tíma. Ég gríp tækifærið og spyr hana um tengslin við Jón heitinn á Vatnsleysu.

Viktoría

Þinur frá Enni og knapi hans Viktoría Huld. Mynd: Freydís Bergsdóttir.

„Ég kynntist Jóni þegar ég var ellefu ára, fyrsta sumarið mitt á Vatnsleysu. Hann var þá kominn í hjólastól enda mjög veikur af krabbameini. En það sem ég var lánssöm að fá að kynnast honum. Hann var einstakur hrossaræktandi og sérvitur, fór alltaf sínar eigin leiðir og sagði mér að gera slíkt hið sama. Að ég skildi fara eftir mínu hjarta, minni eigin tilfinningu. Þetta hef ég sem betur fer gert síðan því annars hefði ég ekki eignast Þin frá Enni og fleiri gæðinga.“

Ljóst er að þau Jón og Ásta tengdust afar nánum böndum, þrátt fyrir fimmtíu ára aldursmun og stuttan tíma saman.

„Þegar Jón var lagður inn á spítala í Reykjavík, síðustu dagana sem hann lifði, sendi hann eftir mér. Þegar ég kom gaf hann mér hestastyttu og ljóð sem hann hafði ort um mig:

Yndis fögur augun þín,
unaðs ljóma skína.
Þú geislum stráðir góða mín,
gegnum sálu mína.“

Glaðst yfir nýju lífi.

Við þegjum smá stund, ræskjum okkur og snýtum. „Mikið er þetta fallegt,“ styn ég upp að lokum.

„Þetta lýsir vináttu okkar vel. Hún einkenndist af mikilli gleði og skemmtilegum sögum um hross og hrossarækt.“

Við ræskjum okkur aðeins betur og ég gríp tækifærið til að rifja upp ástæðu samtals sem hefur borið okkur norður, suður, til himna og aftur til baka. Eftir að hafa jafnað okkur beinum við loks sjónum að trippunum.

Slysafang undan Skýr

„Við erum með mjög spennandi Eldonsdætur,“ segir Ásta. „Við héldum svolítið undir hann og munum gera meira af því. Þetta eru ofboðslega auðtamin og skemmtileg trippi. Og svo gefur hann brúnblesótt í bunkum! Við erum líka með eina mjög efnilega hryssu undan Þin en svo verð ég eiginlega að nefna slysafangið okkar. Slysafangið okkar undan Skýr.“

Ásta hlær á meðan brakar í mínum heila sem finnur enga sennilega skýringu á þessu máli. Varla hefur gamli farið næturrúnt frá Fákshólum, hugsa ég.

„Við gátum ekkert að þessu gert,“ segir Ásta, „ætluðum að halda Rá undir Fork frá Breiðabólsstað en hún var óvart sædd með vitlausu sæði. Sæðið reyndist vera úr Skýr frá Skálakoti og Rá sem hafði ekki fyljast tvö ár í röð fyljaðist með það sama!“

Já, þriggja vetra slysafangið í Ási er rauðblesóttur, leistóttur, hringeygður stóðhestur undan gæðingamóðurinni Rá frá Naustanesi og Skýr frá Skálakoti. Mér verður ósjálfrátt hugsað til þeirra himnafélaga Jóns og Sigurbjarnar.

Valdor frá Ási II, slysa/happa-fangið undan Skýr.

Börnin eru prófsteinninn

„Nú vantar okkur bara stærra hesthús,“ segir Ásta enda nóg að gera á stóru heimili. Tamningar ganga vel og stelpurnar duglegar að aðstoða. „Viktoría Huld frumtamdi til dæmis hana Eldveigu sjálf í fyrra,“ bætir Ásta við. Áðurnefnd Eldveig fór einmitt í fyrstu verðlaun síðasta vor undir stjórn Aðalheiðar Önnu Guðjónsdóttur. „Það er prófsteinninn á okkar ræktun. Ef stelpurnar geta ekki riðið hrossunum þá höfum við ekkert við þau að gera en þá eru þau engar söluvörur heldur. Þær voru pínulitlar í hesthúsinu með okkur og þá strax tókum við þessa ákvörðun: Ef við treystum ekki hrossi í kringum börnin okkar þá viljum við ekki púkka upp á það.“

Stóðhesturinn Steinar frá Stíghúsi og knapi hans Katla Dís.

Kröfur þeirra Ástu og Hannesar hafa greinilega skilað sínu enda hestakosturinn nægur jafnt fyrir stóra sem smáa.

Samtalið tekur nokkrar stefnubreytingar í viðbót og skyndilega fæ ég að finna á eigin skinni að ræktunarsýki Ástu er jafn smitandi og hláturinn. Þegar samtalinu lýkur á ég orðið „toll“ undir forystuhrút í Ási ásamt því að hafa gerst stofnandi ræktunarfélags um geithafur nokkurn. Ég legg ekki meira á ykkur.

Eina girðing sem talið er að haldið hafi geitum.

Við óskum fjölskyldunni í Ási velfarnaðar í áframhaldandi tamningum og þökkum fyrir víðförult samtal.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link