Forseti fallinn
Forseti 6.vetra og Þórður Þorgeirsson Ljósmynd: Eiríkur Jónsson
Stóðhesturinn Forseti frá Vorsabæ II var felldur nú á haustdögum, 30.vetra að aldri. Hann náði háum aldri og bar eigendum sínum fagurt vitni um umönnun og natni.
Forseti er ræktaður af Birni Jónssyni og var í eigu hans og fjölskyldunnar í Vorsabæ á Skeiðum alla tíð. Faðir hans var hinn merkilegi ættfaðir Hrafn frá Holtsmúla og er Forseti hans hæst dæmda afkvæmi. Móðir hans var Litla-Jörp frá Vorsabæ II en sú var undan Þresti frá Teigi II og Litlu-Jörp frá Vorsabæ 1.

Fjölskyldan í Vorsabæ og Forseti. Ljósmynd; Eiríkur Jónsson
Nafn Forseta á sér skemmtilega sögu sem tengist sögu íslensku þjóðarinnar. Það var aðfaranótt 30. júní árið 1996, þegar Ólafur Ragnar Grímsson bar sigur úr býtum í forsetakosningunum, sem myndarlegt jarpt hestfolald kom í heiminn í Vorsabæ. Af því tilefni fékk hann nafnið Forseti. Síðastliðið sumar hélt fjölskyldan í Vorsabæ upp á stórafmæli gæðingsins. Við þau tímamót kom fyrrverandi forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, í heimsókn í Vorsabæ til að heilsa upp á Forseta.

Stefanía og Björn í Vorsabæ ásamt Ólafi Ragnari og Forseta. Ljósmynd: Sölvi Ragnarsson
Forseti kom fyrst fram á kynbótasýningu vorið 2000, aðeins fjögurra vetra gamall, og hlaut strax 1. verðlaun. Sama sumar mætti hann á Landsmót í Reykjavík og hreppti 5. sætið í flokki 4 vetra stóðhesta með 8,12 í aðaleinkunn. Árið 2002 hlaut Forseti sinn hæsta dóm þegar hann hlaut 8,58 í aðaleinkunn. Á Landsmóti á Vindheimamelum það sama ár hafnaði hann í 2. sæti í flokki 6 vetra og eldri stóðhesta með glæsilega einkunn upp á 8,57. Í öllum þessum sýningum sat Þórður Þorgeirsson í hnakknum og sýndi hestinn.
Forseti á 341 skráð afkvæmi í Worldfeng og þar af eru 52 þeirra sýnd í kynbótadómi. Í þeim hópi eru heiðursverðlaunahryssan Hilda frá Bjarnarhöfn, Hersir frá Lambanesi, sem varð annar í flokki 5.vetra stóðhesta á LM2014 og hæst dæmda afkvæmi Forseta, Gleði frá Hólaborg, sem hefur hlotið háan kynbótadóm með 8,62 í aðaleinkunn og staðið sig vel í keppni. Fyrrum heimsmeistarinn í slaktaumatölti, Straumur frá Seljabrekku, Þá hefur Hrafn frá Hestasýn gert það gott í skeiðgreinum og var á meðal keppnishesta á síðasta Heimsmeistaramóti.
Arfleið Forseta mun því áfram lifa í gegnum afkvæmi hans og afkomendur. Hann náði háum aldri, var heilsuhraustur og heilbrigður og sameinar þar með mikilvæga þætti í búfjárrækt þ.e. gæði og endingu.

Forseti 27. vetra og Stefanía Margret. Ljósmyndari: Sigurbjörg Bára
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing