Hagspor íslenska hestsins verður greint
Landssamband hestamannafélaga, Bændasamtök Íslands, Deild hrossabænda innan BÍ, Háskóli Íslands á Hólum og Samtök ferðaþjónustunnar hafa gert með sér samkomulag um greiningu á hagspori hestamennskunnar á Íslandi. Linda Björk Gunnlaugsdóttir formaður LH, Trausti Hjálmarson formaður BÍ, Ólafur Þórisson formaður Deildar hrossabænda, Hólmfríður Sveinsdóttir forseti Háskólans á Hólum og Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri SAF undirrituðu samkomulagið. Þetta kemur fram á vefsíðu LH.
Sýna fram á raunveruleg verðmæti
Markmið greiningarinnar er að draga fram með óyggjandi hætti efnahagslegt og samfélagslegt mikilvægi íslenska hestsins og allrar þeirrar fjölbreyttu starfsemi sem honum tengist. Þar undir falla hrossarækt, keppnis- og viðburðahald, ferðaþjónusta, almennar útreiðar, menntun, útflutningur og margháttuð afleidd þjónusta.
Gengið hefur verið til samninga við ráðgjafarfyrirtækið KPMG um gerð skýrslunnar, sem unnin verður í nánu samstarfi við starfsfólk LH, BÍ og Háskólans á Hólum. Í framhaldinu er stefnt að því að þróa stafrænt mælaborð með lykiltölum greinarinnar sem hagaðilar geta nýtt og tengt við á sínum vefjum.
Í sameiginlegri yfirlýsingu forsvarsmanna verkefnisins segir: „Íslenski hesturinn er einstakur hluti af menningu, atvinnulífi og ímynd Íslands. Með sameiginlegu átaki viljum við sýna með skýrum gögnum hvaða verðmæti greinin skapar þjóðarbúinu og nýta þá þekkingu til frekari uppbyggingar og kynningar.“
Auk greiningarinnar mun samstarfið ná til öflugs kynningarstarfs fyrir íslenska hestinn – með hliðsjón af árangri verkefna á borð við Horses of Iceland – og verður unnið í nánu samtali við stjórnvöld, ráðherra og opinberar stofnanir til að tryggja að niðurstöðurnar nýtist við stefnumótun og verðmætasköpun til framtíðar.
Næstu skref fela í sér að skilgreina nánar umfang rannsóknarinnar, undirbúa mælaborðið og móta samræmda kynningaráætlun. Óhætt er að segja að um tímamótaverkefni sé að ræða sem veitir hestageiranum nauðsynleg vopn í hendur við frekari uppbyggingu og viðurkenningu á mikilvægi hans í íslensku samfélagi.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing