Allir á bak hlýtur samfélagsstyrk Krónunnar
Elísabet og Álfheiður Embla Sverrisdóttir, tóku á móti styrknum í Krónunni á Selfossi föstudaginn 23. október. Mynd: aðsend
Verkefnið Allir á bak, sem Elísabet Sveinsdóttir hafði frumkvæði að og umsjón með hjá hestamannafélaginu Sleipni á Selfossi, hlaut 200.000 króna styrk frá Krónunni en samfélagsstyrkur Krónunnar er árlegur styrkur frá matvöruverslunarkeðjunni Krónunni sem styður við verkefni á sviði lýðheilsu, hreyfingar barna og ungmenna, umhverfismála og samfélagslegra framfara í nágrenni verslana hennar.
Verkefnið Allir á bak hófst hjá Sleipni í mars síðastliðnum og felst í sérstöku reiðnámskeiði fyrir börn með sérþarfir og fjölbreyttar stuðningsþarfir. Markmiðið er að gefa börnunum tækifæri til að kynnast hestum, njóta samveru með þeim og upplifa gleðina sem fylgir hestamennsku. Sérstakur búnaður hefur verið keyptur til að mæta þörfum barnanna og auðvelda þeim þátttöku.
„Fyrstu námskeiðin gengu vonum framar. Aðsókn var mjög góð og ánægjulegt að fylgjast með gleði barnanna og þeim framförum sem þau tóku á skömmum tíma. Stefnt er að því að næstu námskeið fari fram í nóvember,“ segir í tilkynningu frá hestamannafélaginu Sleipni.
„Styrkurinn er mikilvægur stuðningur við áframhaldandi þróun verkefnisins og það góða starf sem þar fer fram. Hann stuðlar að því að fleiri börn fái tækifæri til að taka þátt í hestamennsku á sínum forsendum og njóta þeirra jákvæðu áhrifa sem samvera við hesta getur haft.
Það er sérstaklega ánægjulegt að segja frá því að Álfheiður Embla hefur sjálf tekið þátt í námskeiðinu Allir á bak og sýnt framúrskarandi framfarir á stuttum tíma. Hún hefur jafnframt verið dugleg að mæta í Sleipni og fara á hestbak þegar boðið er uppá að teyma undir börnum.
Hestamannafélagið Sleipnir eru afar þakklát fyrir stuðning Krónunnar við verkefnið Allir á bak. Styrkurinn er hvatning til að halda áfram að skapa jákvætt, aðgengilegt og uppbyggilegt umhverfi þar sem börn fá að njóta sín, upplifa árangur og eiga góðar stundir í hestamennsku.“
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing