„En það verður að ná augunum – þau skipta mestu máli“
Við höldum áfram að kynnast listafólki sem vinnur með íslenska hestinn. Að þessu sinni hringjum við vestur í hana Siggu, Sigríði Ævarsdóttur á Gufuá í Borgarfirði.
Á meðan sóninn ómar velti ég fyrir mér hvernig best verði að titla Siggu. Það er ekki létt verk, veldur eiginlega hausverk, enda Sigga eitt það fjölhæfasta ólíkindatól sem um getur. Fullnægjandi titill gæti hljómað eitthvað á þessa leið: Náttúrulæknir, frumkvöðull, vöruþróunarstjóri, bóndi, rithöfundur, listmálari og geitagöngugarpur. Sigga hefur að auki lokið námi í lífrænum landbúnaði frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri ásamt kennsluréttindanámi í Vistrækt. Þá stendur hún á barmi þess að fá heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, vantar aðeins eitt upp á, því ekki skortir þau hæfileikana. Úr afkvæmahópnum má þekktastan nefna hinn eina sanna Ævar vísindamann (Ævar Þór Benediktsson).
Eintómir geldingar
Sigga svarar og björt röddin, liðugur talandinn og kímnigáfan lofa góðu samtali. Það er stuð í kringum þessa konu. En hvaðan kemur hún?
„Ég kem úr Kópavogi en var mikið í sveit í Skagafirðinum frá því ég var lítil og framundir tvítugt. Þá flutti ég í Borgarfjörðinn og hef verið þar mest síðan. Lengst af bjó ég á Staðarhúsum þar sem við Benni [innskot undirritaðrar: Benedikt Líndal tamningameistari og reiðkennari] eignuðumst fjögur börn, rákum tamningastöð, reiðskóla og hestaferðaþjónustu í hartnær 30 ár. Fyrir átta árum keyptum við svo eyðijörðina Gufuá, sem er næsta jörð við Staðarhús, og höfum verið að koma okkur þar fyrir síðan.“
Þau hjónin una hag sínum vel á Gufuá. Benni temur og þjálfar hesta á meðan Sigga heldur geitur. Eða, geldhafra, nánar tiltekið. Sigga segir eina karldýrið á bænum sem sloppið hafi undan geldingu sé Benni. Þvert gegn fyrstu grunsemdum mínum framleiðir Sigga þó ekki haframjólk – nei, hún gengur með ferðamenn. Geitalabb kallast það og er vinsælt. En hvernig kynntist Sigga hestinum, þeim sem er miðpunktur listarinnar?
„Ég kynntist honum þegar ég var í sveitinni í Flugumýrarhvammi þá sex ára gömul. Þar var fullorðinn hestur, Bleikur gamli, sem við krakkarnir fengum að skríða á bak á og það eru mínar fyrstu minningar um hesta og áhuga á þeim. Síðar fór ég til afa og ömmu á Ríp og þar var mikið af hrossum sem var verið að smala og reka á fjall og stússast í og þar fer áhuginn verulega að vakna. Minn fyrsta hest fékk ég í fermingargjöf, annan hest keypti ég þegar ég var átján ára og hef alltaf verið með hesta síðan.“

Erfiljóð um Létti frá Stóra-Ási. Mynd af þeim vinunum Létti og Benedikt Líndal. Ljóð og mynd eftir Siggu.
Augun skipta mestu
Íslenski hesturinn hefur leikið stórt hlutverk í lífi þeirra hjóna. Saman hafa þau stundað alls kyns hestatengda þjónustu en jafnframt rekið fyrirtækið InHarmony um árabil. Fyrirtækið hannar, þróar og flytur inn hnakka og önnur reiðtygi. Þá gáfu þau hjónin út bókina „Tölum um hesta“ haustið 2021. Bókin hlaut mjög góðar viðtökur en athygli vöktu myndirnar sem bókina prýddu; myndirnar hennar Siggu. Hvenær bætti hún þessari skrautfjöður í hæfileikahattinn?
„Ég hef alltaf verið að teikna og mála frá því ég man eftir mér. Þegar áhuginn á hestum hófst fóru þeir að taka meira pláss á blaði hjá mér en annað. Ég sá einhverjar flottar myndir, póstkort eða málverk og apaði eftir þeim. Þegar ég var komin eitthvað á fimmtugsaldurinn fór ég að prófa að nota vatnsliti, aðallega af því hversu hentugir þeir eru, fljótir að þorna og kalla ekki á mikla málningaraðstöðu. Það þróaðist svo áfram ásamt blýantsteikningum. Ég mála eftir pöntunum, fólk sendir mér ljósmynd og ég vinn eftir henni og mála eða teikna í þeirri stærð sem viðkomandi hentar. Ég er í raun enn að því sama og vinn eftir ljósmyndum. Ég hef raunar aldrei litið á mig sem alvöru listamann, meira áhugamanneskju eða handverkskonu þegar kemur að mínum verkum.“
Þótt Sigga sé ekki í bráðri hættu að ofmetnast er ljóst að myndir hennar eru listaverk. Því þrátt fyrir að vera málaðar eftir ljósmyndum ljær Sigga verkum sínum einstakan lífsneista. Líkt og hún fangi sál viðfangsins og skili því til verksins. Ég spyr hana út í þá list.
„Ég reyni alltaf að ,,ná“ akkúrat þeim hesti sem ég er að mála hverju sinni, þannig að hann sé raunverulega sá sem verið er að mála. Það tekst svosem misvel, það er alveg hægt að svindla smá, en það verður að ná augunum – þau skipta mestu máli.“
Og þar kemur kannski svarið. „Andlitið er mynd sálar en augun túlkur hennar,“ sagði Cicero skömmu fyrir Krist.
Tilfinningin fyrir viðfangsefninu
„Hvers vegna hesturinn, Sigga?“ spyr ég. „Hvað er það sem gerir hann svona gott viðfangsefni?“
„Ég held að það sé fyrst og fremst áhugi minn á hestum sem gerir það að verkum að ég hef sveigst þangað en ekki eitthvert annað. Svo eru þeir, eins og svo sem við mannfólkið, allir ólíkir og einstakir, með alls konar útliti, liti, líkamstjáningu og útgeislun. Sumt listafólk segir rosalega erfitt að mála eða teikna hesta og ég hef alveg séð hestamyndir eftir flinka listamenn sem hafa verið frekar misheppnaðar að mínu mati. Líklegasta skýringin er að viðkomandi viti lítið um hesta. Ef maður hefur ekki tilfinningu fyrir viðfangsefninu er erfitt að mála það á sannfærandi hátt og stundum er líkamsbeitingin eða heildarmyndin einfaldlega röng eða óeðlilega útfærð. Þetta sér fólk sem þekkir hesta strax þó það kunni að fara framhjá öðrum.“
Sauðféð þekkir Sigga líka vel enda bjó hún lengi með kindur og nú á síðari árum forystukindur sem nýtast áttu í „labbið“. Sigga neyddist þó til að rifta þeim ráðningarsamningi enda sást sjaldnar framan í þær en aftur undir. Sauðféð hefur þó fengið sinn stað á pappírnum.
„Það er alveg rosalega skemmtilegt að mála kindur. Þær geta verið svo fallega ljótar og verða sumar alveg einstaklega flottar drottningar þegar þær eru komnar á pappír.“
Á döfinni
Við ræðum það sem er framundan, hina árlegu jólatörn. Sigga hefur síðustu ár málað fjölmargar myndir eftir pöntunum sem endað hafa undir jólatrénu. En stendur til að halda sýningu?
„Í tengslum við útgáfu bókarinnar okkar Benna, Tölum um hesta, bauð Bjarni Þór mér að halda sýningu á myndunum úr bókinni í galleríinu hans á Akranesi og stóð sú sýning í nokkrar vikur. Það var virkilega gaman að prófa það þó ég stefni ekki á frekari sýningar eða frama á því sviði. Held ég sé komin alveg eins hátt og ég kemst núna og þetta verði ekkert betra hjá mér en það er nú þegar.“
Ég get ekki annað en glott á hinum endanum. Í nútíma samfélagi er eitthvað svo hressandi að hitta fyrir hina sannhógværu. Hún bætir svo um betur þegar ég óska eftir samfélagsmiðlunum, þeim sem hún nýtir til að kynna verkin:
„Ég er nú ekki einu sinni með neina Instagram síðu eða annað þannig að það er í raun hvergi hægt að sjá neitt á einum stað frá mér. Djíses, hvað maður er flottur í markaðssetningunni!“
„Má ekki bara taka upp tólið?“ spyr ég. „Er það löng-stutt-stutt fyrir Gufuá?“
Við hlægjum saman og rétt áður en við slítum samtalinu panta ég hjá henni mynd af einni fallega ljótri kind sem ég á.
Við þökkum Sigríði Ævarsdóttur fyrir samtalið og óskum henni góðs gengis í öllum hennar fjölbreyttu störfum.

Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Allir á bak hlýtur samfélagsstyrk Krónunnar