„Á hestbaki finn ég frelsið“
Lisa og stóðhesturinn Maximus frá Akurgerði. Saman hafa þau meðal annars sigrað í heildarstigakeppni fjórgangs í C-flokki. Mynd úr einkasafni Lisu.
Það er ótrúlegt hvað maður getur rekist á áhugaverðar síður á samfélagsmiðlum. Fyrir skömmu rakst ég á Instagram-reikning ungrar konu frá Austurríki sem vakti strax forvitni mína. Þar deilir hún myndum og myndskeiðum af sér á hestbaki og samveru sinni með hestunum. Það sem vakti ekki síst athygli mína var hvernig hún hafði fundið sínar eigin leiðir til að stunda hestamennsku.
Mig langaði að vita meira um þessa ungu konu og heyra hennar sögu. Ég hafði því samband við hana og spurði hvort hún væri tilbúin að segja lesendum Eiðfaxa frá reynslu sinni. Hún tók afar vel í erindið og svaraði spurningum mínum af mikilli einlægni.
Konan heitir Lisa, er 22 ára og býr í Vínarborg í Austurríki. Hún hefur verið á íslenskum hestum frá tveggja ára aldri og eyðir nánast hverjum degi í hesthúsinu. Hún hefur náð ágætis árangri í keppni en segir sambandið við hestana skipta sig mestu máli.
Lisa stundar nám til grunnskólakennara og stefnir á að starfa með börnum í framtíðinni. Hún fæddist án þriggja neðstu hryggjarliðanna, spjaldbeins og rófubeins. Hún notar hjólastól þegar hún fer lengri vegalengdir en getur gengið styttri vegalengdir með hækjum.
Hún segir hjólastólinn ekki vera eitthvað neikvætt í lífi sínu heldur mikilvægan hluta af því hver hún er.
„Hjólastóllinn veitir mér sjálfstæði og gerir mér kleift að gera það sem ég elska, sérstaklega að ríða út og vera með hestunum mínum.“
Á hestbaki frá tveggja ára aldri
Kynni Lisu af íslenskum hestum hófust þegar hún var aðeins tveggja ára. Systir hennar stundaði hestamennsku og vildi að Lisa fengi einnig tækifæri til þess. Hún leitaði leiða til að gera það mögulegt og þannig hófst reiðmennska Lisu með hestamiðaðri meðferð.
Síðar lærði Lisa að ríða á Riff Raff, fyrsta keppnishesti systur sinnar. Hann varð hennar fyrsti stóri vinur í hestamennskunni og fylgdi henni í sextán ár.
Þau áttu saman ótal stundir, fóru í útreiðatúra, kepptu og syntu meira að segja saman. Riff Raff féll frá í júlí síðastliðnum, 25 vetra gamall.
„Hann var svo miklu meira en bara hestur fyrir mér. Hann var besti vinur minn, mitt athvarf og upphafið að ást minni á íslenskum hestum.“

Lisa ásamt Riff Raff sem var hennar besti vinur í sextán ár. Hann féll frá í júlí síðastliðnum, 25 vetra gamall. Mynd úr einkasafni Lisu.
Að finna eigin leiðir
Fyrstu árin notaði Lisa sérstaka reiðgjörð sem hún gat haldið sér í og systir hennar lyfti henni á bak. Með aukinni reynslu fór hún að leggja meiri áherslu á að geta gert hlutina sjálf.
Hún kenndi hestunum sínum að stilla sér upp við stóran fóðurkassa sem hún notar sem upphækkun þegar hún fer á bak. Hestarnir hafa lært að standa rólegir á meðan hún kemur sér fyrir.
Þetta hefur gefið henni aukið sjálfstæði og frelsi í reiðmennskunni.
Fyrir um ári ákvað Lisa að skipta úr reiðgjörð yfir í hnakk sem var sérstaklega lagaður að þörfum hennar og hestanna. Breytingin reyndist ekki auðveld enda hafði hún þróað sinn eigin reiðstíl með gjörðinni í gegnum árin.
„Ég var hrædd um að þurfa jafnvel að byrja að læra allt upp á nýtt. En heilsa og vellíðan hestanna minna skiptir mig gríðarlega miklu máli.“
Hún er enn að venjast hnakknum en segir ákvörðunina hafa verið mikilvæga þar sem langvarandi notkun reiðgjarðarinnar væri ekki heppileg fyrir bak hestanna.
Að læra af hverjum hesti
Lisa leggur áherslu á að hestarnir hennar séu ekki sérstaklega þjálfaðir meðferðarhestar. Hún ríður mörgum ólíkum hestum og telur það mikilvægan þátt í eigin þroska sem knapa.
Hún hefur kennt sínum eigin hestum ákveðnar aðferðir sem auðvelda henni dagleg samskipti við þá en segir ekki síður mikilvægt að knapinn læri að skilja eiginleika og þarfir hvers hests.
„Ég tel að maður læri fyrst raunverulega að ríða þegar maður er tilbúinn að vinna með ólíkum hestum, skapgerð þeirra og eiginleikum.“
Hún segir að hver hestur hafi kennt sér eitthvað nýtt.
„Ég tel ekki að allir hestar eigi að þurfa að laga sig að mér. Ég vil líka læra að laga mig að hverjum einstökum hesti.“
Árangur á keppnisvellinum
Keppni hefur lengi verið hluti af hestamennsku Lisu og hún hefur náð góðum árangri með hestunum sínum.
Lisa hefur meðal annars sigrað í heildarstigakeppni fjórgangs í C-flokki á stóðhestinum Maximus frá Akurgerði. Þá náði hún öðru sæti í heildarstigakeppni fimmgangs í sama flokki á hryssunni Illy.
Sérstakt samband hefur myndast milli Lisu og hryssunnar Illy. Þær hafa unnið mikið saman í gegnum árin, bæði í reið og við vinnu í hendi. Lisa hefur meðal annars kennt hryssunni um 21 mismunandi æfingu, þar á meðal að leggjast niður og rísa upp á afturfætur eftir bendingu.
Annar hestur sem hafði mikil áhrif á reiðmennsku hennar var Eros, fyrsti stóðhesturinn sem hún reið. Hann var í eigu systur hennar sem treysti Lisu fyrir honum þegar hún tók þátt í sinni fyrstu stóru keppni. Á honum keppti hún einnig á sínu fyrsta meistaramóti.
Þótt Lisa hafi metnað til að ná árangri segir hún verðlaunin ekki það sem standi helst upp úr. Mikilvægara sé það sem hún og hestarnir læra saman og traustið sem myndast í þeirri vinnu.

Lisa og hryssan Illy í sinni fyrstu PP2-skeiðkeppni. Mynd úr einkasafni Lisu.
Jákvæð reynsla af hestamennskunni
Lisa segir reynslu sína af samfélagi íslenska hestsins hafa verið afar jákvæða. Hún hafi almennt mætt hlýju og virðingu og finni fyrir einlægum áhuga fólks á því hvernig hún stundar sína hestamennsku.
Hún fær gjarnan spurningar um hvernig hún fari á hestbak eða leysi ýmis verkefni í kringum hestana og segist alltaf vera tilbúin að svara þeim.
Þótt hún hafi þurft að yfirstíga ákveðnar hindranir til að fá sömu tækifæri til þátttöku í keppnisíþróttum og aðrir knapar segir hún reynslu sína af hestasamfélaginu almennt hafa verið góða.
„Ég hef lært að stundum þarf maður að finna sína eigin leið og berjast fyrir draumum sínum.“
Vináttan er stærsti sigurinn
Þegar Lisa er spurð hvað reiðmennskan gefi henni stendur ekki á svarinu.
„Þegar ég er á hestbaki finn ég fyrir frelsi og sjálfstæði. Þá skiptir ekki máli að ég noti hjólastól í daglegu lífi. Ég get notið náttúrunnar með hestinum mínum, tekist á við nýjar áskoranir og einfaldlega notið augnabliksins.“
Lisa á sér markmið í keppni og dreymir um að ríða í A-flokks prógram í gæðingakeppni. Hún leggur þó áherslu á að árangur á keppnisvellinum verði aldrei mikilvægari en sambandið við hestana.
„Ég vil ekki bara sitja á hesti og ná góðum árangri. Ég vil að við séum liðsheild sem treystir hvort öðru og höfum bæði ánægju af því sem við gerum.“
Það eru ekki alltaf stóru augnablikin sem sitja sterkast eftir. Stundum eru það útreiðarnar, stundirnar við þjálfun eða einfaldlega það að koma í hesthúsið og finna hestana taka á móti sér.
Þegar Lisa hugsar um framtíðina er óskin að halda áfram að læra, bæta sig sem knapi og styrkja sambandið við hestana sína.
„Fyrir mér er mesti sigurinn ekki sæti á verðlaunapalli heldur sönn vinátta milli manns og hests.“
Lisa deilir reglulega myndum og myndskeiðum úr hestamennskunni á Instagram þar sem hægt er að fylgjast með henni og hestunum hennar á @littleisirider.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Allir á bak hlýtur samfélagsstyrk Krónunnar