“Minn hugur leitar til þess að bæta núverandi kerfi”

  • 26. október 2026
  • Fréttir

Glettubikarinn er veittur þeirri hryssu sem hlýtur 1.sæti heiðursverðlaunahryssa. Ljósmynd: Magnús Benediktsson

Telur að endurhugsa mætti afkvæmaverðlaun hryssa

Umræða um þær forsendur sem hryssur þurfa að uppfylla til að hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi hefur náð flugi í kjölfar umfjöllunar á vef Eiðfaxa. Umfjöllunin beindist að því hvort hryssur þurfi að vera á lífi eður eigi þegar þær hljóta slíka heiðrun en fleiri þætti mætti skoða ef endurhugsa á forsendur verðlaunanna.

Forsendur til heiðursverðlauna hryssa eru að lágmarki 5 dæmd afkvæmi og 116 stig eða meira í aðaleinkunn eða aðaleinkunn án skeiðs auk þess að vera á lífi. Við 5 dæmd afkvæmi er vægi einstaklingsdóms og afkvæma í kynbótamatinu það sama en upplýsingar um ætterni hafa hærra vægi, þ.e. afrek föður og móður og tengdra gripa.

Í nokkrum aðildarlöndum FEIF eru veitt afkvæmaverðlaun sem taka mið af aðaleinkunn afkvæma og því fleiri þáttum en kynbótamati. Ein leið gæti því verið að nota þær upplýsingar til að heiðra hryssur og hafa tvær leiðir að afkvæmaverðlaunum annars vegar á grunni kynbótamats og hinsvegar á grunni aðaleinkunnar afkvæma. Eins mætti með einhverjum hætti sameina þessa tvo þætti.

Einn af þeim ræktendum sem hafa nýlega tjáð sig um framkvæmd heiðursverðlauna hryssa er Guðmundur Viðarsson í Skálakoti, en hann viðraði skoðun sína við Morgunblaðið á Landsmóti í sumar. Í samtali við Eiðfaxa hafði hann þetta að segja.

“Ef við ætlum að verðlauna hryssur fyrir afkvæmi á annað borð að þá fyndist mér það afturför að fara til baka og nota eingöngu aðaleinkunn afkvæma og kollvarpa því fína kerfi sem við höfum nú stuðst við í áratugi. Ég er á þeirri skoðun að hvert afkvæmi hryssu ætti að vega hærra inn í kynbótamatið og þegar að hryssan ætti orðið 5,6 eða 7 sýnd afkvæmi að þá hefði einstaklingsdómurinn og ætternið mun minna að segja en afkvæmin. Það gæti vel verið að þetta sé ekki hægt af einhverjum praktískum ástæðum. En minn hugur leitar til þess að bæta það kerfi sem við notum nú, frekar en að hverfa frá því. Við erum búinn að verðlauna hryssurnar á grundvelli einstaklingsdóms en þessi verðlaun eiga að snúast um afkvæmin.”

Farsælar hryssur ekki hlotið verðlaun

Líkt og dæmin sanna hafa þó nokkrar farsælar ræktunar hryssur, sem skilað hafa miklu til íslenska hrossastofnsins, ekki náð þeim lágmörkum í kynbótamati sem til þarf til þess að hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Til glöggvunar koma hér á eftir nokkur dæmi um hryssur sem reynst hafa vel til undaneldis en ekki hlotið afkvæmaverðlaun.

Hrísla frá Naustum: Fædd árið 1994, féll árið 2017. Faðir: Hugi frá Höfða (eingöngu sýndur í sköpulagi), móðir Neista frá Naustum (ósýnd). Hrísla eignaðist 12 afkvæmi þar sem 9 þeirra mættu til fullnaðardóms, meðaðtal aðaleinkunnar þeirra er 8,29.

Orka frá Hvolsvelli: Fædd árið 1992, féll árið 2019. Faðir: Hektor frá Akureyri (Ae: 8,41. 1.verðlaun fyrir afkvæmi árið 1998). Móðir: Litla-Kolla frá Jaðri 1 (Ae: 8,06). Orka eignaðist 16 afkvæmi þar sem 13 mættu til fullnaðardóms, meðaltal aðaleinkunnar þeirra er 8,12

Auðna frá Höfða: Fædd árið 1995, féll árið 2022. Faðir: Stjarni frá Vatnsleysu (ósýndur). Móðir: Brúnka frá Höfða (ósýnd). Auðna eignaðist 17 afkvæmi þar sem 11 mættu til fullnaðardóms, meðaltal aðaleinkunnar þeirra er 8,13.

Vök frá Skálakoti: Fædd árið 2001, féll árið 2026. Faðir: Gnýr frá Stokkseyri (Ae: 8,26). Móðir: Kvikk frá Jaðri (Ae: 7,87). Vök á 15 afkvæmi, ekki öll kominn á tamningaaldur. 8 þeirra hafa mætt til fullaðardóms og er meðaltal aðaleinkunnar 8,25.

Án alls vafa væri hægt að taka fleiri dæmi um slíkar hryssur en látum hér við sitja.

“Taka skal fram að með þessum vangaveltum er ekki gert lítið úr þeim árangri og elju sem hundruðir ræktenda hafa náð þegar þeirra hryssur eru heiðraðar. En ef að sú vinna fer nú í gang, að taka til endurskoðunar afkvæmaverðlaun hryssa, væri lag að grípa tækifærið og velta öllum hliðum málsins fyrir sér.” Segir Guðmundur að lokum.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link