Ungir og aldnir á Fákum og fjöri
Af mörgum spennandi dagskráliðum er að taka á stórsýningunni Fákar og fjör 2011 fer fram í Top Reiter höllinni á Akureyri á laugardag.
“Hin knáa hestakona Auður Karen Auðbjörnsdóttir í Hólakoti, sem er 6 ára gömul, ætlar að sýna listir sínar á stóðhestinum Friðriki X frá Vestri-Leirárgörðum.
Þá kemur Ingimar Sveinsson með Pílatus frá Eyjólfsstöðum en þeir félagarnir eru rétt komnir yfir miðan aldur, Ingimar er 82 ára og Pílatus 26 vetra. Þá verða úrval kynbótahrossa á staðnum.
Árni Björn Pálsson mun mæta með hina frábæru List frá Vakurstöðum, Egill Þórarinsson mætir með Fróða frá Staðartungu, Hrymur frá Hofi er kominn í gírinn og hefur aldrei verið betri.
Tryggvi Björnsson lætur vel að sér kveða í sýningunni og mætir með kynbótahross á öllum aldri, má þar nefna systkinin frá Söguey þau Sif Orradóttur og Sváfni Álfasteinsson.
Mette Mannseth sýnir okkur listir sínar á stóðhestinum Hætti frá Þúfum. Unglingar hjá Létti verða með flott munsturatriði o.fl. o.fl,” segir í fréttatilkynningu frá hestamannafélaginu Létti.
Miðasala stendur yfir hjá Fákasporti og Líflandi á Akureyri. Tryggið ykkur miða í tíma. Miðaverð 2.500 kr. en frítt fyrir 12 ára og yngri.
Sýningin hefst kl. 18 á laugardaginn 16. apríl í Top Reiter höllinni á Akureyri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH