Hella í kvöld
Almennir fundir í fundarröð Félags hrossabænda og Fagráðs í hrossarækt um málefni hestamanna hefjast fljótlega. Helstu málefni sem tekin verða fyrir á fundunum eru eftirfarandi:
· Markaðsátak í hestamennsku – kynning.
· Sýningarárið 2015 í kynbótadómum.
· Vinna við nýjan dómskala í kynbótadómum verður kynnt.
· Val kynbótahrossa á Landsmót 2016 – hugmyndir kynntar.
· Framkvæmd Landsmóts 2016.
Eins og sjá má verður margt áhugavert á döfunni og mikilvægt að hestafólk fjölmenni á fundina.
Með fulltrúum Félags hrossabænda og fagráðs, þeim Sveini Steinarssyni formanni Félags hrossabænda og fagráðs og Þorvaldi Kristjánssyni, ábyrgðarmanni í hrossarækt verður fulltrúi Landssambands Hestamannafélaga og munu þau verða frummælendur fundanna.
Fundurinn verður
14. okt. Hella kl. 20:00 – Stracta Hótel.
Styttu haustið með EiðfaxaTV