Nýtt hestadagatal
Komið er út nýtt og óvenjulega vandað hestadagatal fyrir árið 2015. Dagatalið prýða 12 svart hvítar ljósmyndir sem sýna íslenska hestinn og náttúru Íslands á einstaklega fallegan máta. Dagatalið er í stærðinni A-3 þegar það er upphengt og hægt að skrifa í reiti sem sýna hvern dag ársins. Pappír og prent í dagatalinu er mjög vandað og það hannað þannig að hægt er að rífa myndirnar frá og eiga þær eftir að líftíma dagatalsins lýkur. Dagatalið mun verða til sölu í hestavöruverslunum og nokkrum völdum verslunum á Reykjavíkursvæðinu. Einnig er hægt að panta það beint hjá: ([email protected]), í gegn um heimasíðu Þingeyrabúsins,www.thingeyrar.is eða á Facebook hjá Gígju Dögg Einarsdóttur og Helgu Thoroddsen.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing