Molar í Meistaradeildinni

  • 30. janúar 2013
  • Fréttir

Artemisia Bertus keppir á Korgi frá Ingólfshvoli í fjórgangi Meistaradeildarinnar. Korgur sló í gegn í kynbótadómi 5 vetra.

Keppendur í Meistaradeildinni tefla fram þekktum gæðingum í fjórgangi sem fram fer fimmtudagskvöldið 31. janúar.

Áhorfendur Meistaradeildar í hestaíþróttum munu fá vel fyrir sinn snúð á fyrsta móti deildarinnar, sem haldið verður í Ölfushöllinni annað kvöld. Keppt verður í fjórgangi.

Á ráslistanum er að finna marga þekkta fjórgangara, svo sem Íslandsmeistarann frá í fyrra, Hrímni frá Ósi knapi Guðmundur Björgvinsson, en einnig fræga fimmgangara, svo sem  stóðhestinn Konsert frá Korpu knapi John Sigurjónsson. Konsert er sonur Sæs frá Bakkakoti og er ekki fyrsta afkvæmi hans til að leika þennan leik. Tónn frá Ólafsbergi, sem var efstur í fimmgangi eftir forkeppni á HM2009, var á toppnum í fjórgangi í Meistaradeildinni það árið, knapi Daníel Jónsson.

Fleiri molar eru á seðlinum. Jakob S. Sigurðsson keppir á Asa frá Lundum, Sigurður Sigurðarson á Loka frá Selfossi, Artemisia Bertus á Korg frá Ingólfshvoli, Silvía Sigurbjörnsdóttir á Þóri frá Hólum (með 8,0 fyrir skeið í kynbótadómi), Hinrik Bragason á Hæng frá Hæl og Árni Björn Árnason á Öfjörð frá Litlu-Reykjum.

Í tilefni 10 ára afmælis deildarinnar verður stutt hátíðardagskrá áður en mótið hefst. Húsið opnar klukkan 18.30. Boðið er upp á veitingar og söngatriði og Guðni Ágústsson flytur ávarp.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link