Kynbótajöfur íslenskrar hrossaræktar

  • 22. september 2014
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Miklir yfirburðir Orra frá Þúfu sem kynbótagrips.

Fallinn er frá merkasta hross í sögu íslenska hestakynsins. Ekkert hross hefur markað jafn djúp spor í íslenska hrossarækt og Orri frá Þúfu, sem fellur var síðustu helgi, 28 ára vetra að aldri. Yfirburðir Orra frá Þúfu sem kynbótagrips hafa um árabil verið algerir.

Skráð afkvæmi hans eru 1333. Alls hafa 43,5% þeirra hlotið fullnaðardóm eða 580 talsins. Af þeim hafa 308, 53%, hlotið fyrstu verðlaun.

Orri hefur gefið fjöldann allan af afkvæmahrossum. Fjórtán hafa hlotið heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og enn fleiri niðjar hans hafa hlotið afkvæmaverðlaun.

 

Heiðursverðlaunahross undan Orra

Andvari frá Ey
Álfur frá Selfossi
Gári frá Auðsholtshjáleigu
Gígja frá Auðsholtshjáleigu
Hera frá Herríðarhóli
Hryðja frá Hvítanesi
Markús frá Langholtsparti
Sær frá Bakkakoti
Trú frá Auðsholtshjáleigu
Vilmundur frá Feti
Vordís frá Auðsholtshjáleigu
Þerna frá Feti
Þorri frá Þúfu
Þristur frá Feti

Í 9. tölublaði Eiðfaxa verður farið yfir feril Orra og áhrifa hans á íslenska hrossarækt. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link