Heimsmeistarar stíga á stokk
Töltmót landslilðsnefndar „Þeir allra sterkustu“ er eitt allra sterkasta töltmót ársins. Mótið í ár verður þann 26. mars í Samskipahöllinni í Spretti. Miðasala hefst í vikunni og fyrstir koma fyrstir fá! Í fyrra var höllin troðfull en það var í fyrsta skiptir sem mótið var haldið á þessum stað og utan Skautahallarinnar í Laugardal.
Mótið tókst afar vel og er gríðarlega mikilvæg fjáröflun fyrir landslið Ísland í hestaíþróttum en í ágúst mun liðið taka þátt í Norðurlandamótinu í Biri í Noregi.
Stemningin í Samskipahöllinni verður frábær ef marka má undirtektir knapa og annarra hestamanna, enda verður dagskráin þétt og spennandi.
- Glæsilegir töltarar
- Heimsmeistaraatriði
- Magnaðir stóðhestar
- Happdrætti
- Stóðhestavelta
- Skemmtiatriði og tónlist
- Veitingasala
Það ætlar enginn að missa af þessu kvöldi!
Landsliðsnefnd LH
Styttu haustið með EiðfaxaTV