180 knapar sýndu hross í fullnaðardómi á árinu
Þorgeir Ólafsson og Blíða frá Bergi á Landsmóti. Ljósmynd: Þórhildur Gunnarsdóttir
Kynbótasýningum ársins á Íslandi lauk í ágúst með síðsumarssýningum á Rangárbökkum og á Hólum. Alls voru haldnar 19 sýningar á fimm mismunandi stöðum á landinu, auk kynbótasýningar á Landsmóti.
Mikil gróska er í knapavali á Íslandi um þessar mundir, en alls sýndu 180 knapar hross í fullnaðardómi á árinu. Sú þróun að sífellt fleiri knapar spreyti sig á kynbótabrautinni er afar jákvæð fyrir kynbótastarfið í heild sinni og ber vott um mikla breidd í knapahópnum.
Þorgeir Ólafsson var sá knapi sem sýndi langflest hross, eða alls 145 talsins. Næstur á eftir honum kom Árni Björn Pálsson með 72 og þar á eftir fylgdu þeir Jón Ársæll Bergmann með 53 og Teitur Árnason með 52.
Knapar sem sýndu fimm hross eða fleiri í fullnaðardómi
| Knapi | Fjöldi |
| Þorgeir Ólafsson | 145 |
| Árni Björn Pálsson | 72 |
| Jón Ársæll Bergmann | 53 |
| Teitur Árnason | 52 |
| Daníel Jónsson | 51 |
| Viðar Ingólfsson | 51 |
| Þórarinn Eymundsson | 47 |
| Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir | 46 |
| Benjamín Sandur Ingólfsson | 45 |
| Elvar Þormarsson | 42 |
| Helga Una Björnsdóttir | 39 |
| Agnar Þór Magnússon | 34 |
| Bjarni Jónasson | 34 |
| Guðmundur Friðrik Björgvinsson | 31 |
| Hlynur Guðmundsson | 31 |
| Ásmundur Ernir Snorrason | 29 |
| Jakob Svavar Sigurðsson | 22 |
| Hans Þór Hilmarsson | 21 |
| Barbara Wenzl | 19 |
| Sigurður Vignir Matthíasson | 19 |
| Axel Örn Ásbergsson | 18 |
| Gústaf Ásgeir Hinriksson | 18 |
| Mette Camilla Moe Mannseth | 18 |
| Vera Evi Schneiderchen | 18 |
| Björn Haukur Einarsson | 17 |
| Glódís Rún Sigurðardóttir | 17 |
| Helgi Þór Guðjónsson | 17 |
| Björg Ingólfsdóttir | 15 |
| Ólafur Andri Guðmundsson | 15 |
| Brynja Kristinsdóttir | 14 |
| Ísólfur Líndal Þórisson | 14 |
| Flosi Ólafsson | 12 |
| Guðmar Freyr Magnússon | 12 |
| Valdís Björk Guðmundsdóttir | 12 |
| Erlingur Ingvarsson | 11 |
| Elvar Logi Friðriksson | 10 |
| Eyrún Ýr Pálsdóttir | 9 |
| Þorvaldur Árni Þorvaldsson | 9 |
| Ævar Örn Guðjónsson | 9 |
| Bergur Jónsson | 8 |
| Elín Holst | 8 |
| Bylgja Gauksdóttir | 7 |
| Hafþór Hreiðar Birgisson | 7 |
| Hans Friðrik Kjerulf | 7 |
| Kristófer Darri Sigurðsson | 7 |
| Páll Bragi Hólmarsson | 7 |
| Þorvaldur Logi Einarsson | 7 |
| Þórarinn Ragnarsson | 7 |
| Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir | 6 |
| Hörður Óli Sæmundarson | 6 |
| Jóhann Kristinn Ragnarsson | 6 |
| Olil Amble | 6 |
| Reynir Aðalsteinsson | 6 |
| Fredrica Anna Lovisa Fagerlund | 5 |
| Herjólfur Hrafn Stefánsson | 5 |
| Jóhanna Margrét Snorradóttir | 5 |
| Magnús Bragi Magnússon | 5 |
| Sara Sigurbjörnsdóttir | 5 |
| Vignir Sigurðsson | 5 |
„Hún er ekkert að gefa mér blítt auga“
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð