Rekstrarstjóri óskast
Laus er til umsóknar staða rekstrarstjóra hjá hestmannafélaginu Sörla í Hafnarfirði. Um er að ræða 60% starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf fljótlega.
Helstu verkefni:
- Daglegur rekstur, fjáröflun og fjármálastjórn
- Samskipti við stjórn og félagsmenn
- Viðburða- og verkefnastjórn
- Þróun og uppbygging hestamannafélagsins Sörla
- Vefstjórn
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Tölvukunnátta
- Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
- Góðir samskiptahæfileikar
Nánari upplýsingar veitir formaður félagsins, Magnús Sigurjónsson á [email protected] og skal umsókn og ferilskrá sendast á sama netfang. Umsóknafrestur er til 15. september n.k.