Knapi ársins í Svíþjóð

  • 10. nóvember 2019
  • Fréttir

Háfeti frá Úlfsstöðum er glæsilegur töltari, knapi Eyjólfur Þorsteinsson.

Svíar héldu hausthátíð sína nú um helgina og útnefndu meðal annars knapa ársins

Það var Eyjólfur Þorsteinsson sem var útnefndur knapi ársins í Svíþjóð. Eyjólfur átti góðu gengi að fagna í ár, og reið Háfeta frá Úlfsstöðum til sigurs á sænska meistaramótinu í gæðingakeppni. Auk þess keppti hann á honum til A-úrslita í tölti á HM í Berlín. Þá sýndi hann 18 hross í kynbótadóm á árinu með góðum árangri.

Þá var það gefið út að sænska meistaramótið fer fram í Himmelstalund

Knapi ársins: Eyjólfur Þorsteinsson

Íþróttaknapar ársins:
Fullorðnir: Magnús Skúlason
Ungmenni: Jack Eriksson
Yngri-flokkar : Victor Elgholm

Gæðingaknapar ársins:
Fullorðnir: Eyjólfur Þorsteinsson
Ungmenni: Ebba Johannesson og Maia Leikermoser Wallin
Yngri-flokkar: Victor Elgholm

Gæðingur ársins: Háfeti frá Úlfsstöðum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link