„Gæðingafimi skemmtileg keppnisgrein ef þú ert vel undirbúinn“

  • 7. mars 2020
  • Sjónvarp

Keppni í gæðingafimi í Meistaradeild Ungmenna fór fram í gærkvöldi í Fákaseli. Verðlaunin í þessari grein gáfu Margrétarhof og Gangmyllan. Aðalstyrktaraðili deildarinnar eru Dýralæknar Sandhólaferju

Tölvu-vandræði settu svip sinn á kvöldið í því formi að eftir að forkeppni var lokið var ekki búið að lesa upp tölur og því ekki ljóst hverjir færu í úrslit. Færa þurfti allar tölu aftur inn til þess að fá úr því skorið.

En allt fór vel að lokum og fimm frábærar sýningar sáust í úrslit. Hákon Dan Ólafsson stóð uppi sem sigurvegari á Hnyðju frá Koltursey en litlu munaði á honum og Charlotte Seraina Hutter sem varð í öðru sæti á Rauðku frá Ketilsstöðum.

Stigshæsta lið kvöldsins var lið Málningar en fyrir hönd liðsins tóku þátt í gæðingafimi þau Hákon Dan Ólafsson, Benjamín Sandur Ingólfsson og Arnar Máni Sigurjónsson

 

Heilar niðurstöður verða birtar þegar þær berast.

A-úrslit

  1. Hákon Dan Ólafsson og Hnyðja frá Koltursey: 7,30
  2. Charlotte Seraina Hutter og Rauðka frá Ketilsstöðum: 7,28
  3. Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir og Skálmöld frá Eystra-Fróðholti: 6,92
  4. Thelma Dögg Tómasdóttir og Marta frá Húsavík: 6,81
  5. Emma R. Bertelsen og Askur frá Miðkoti: 6,67

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link