Vellirnir á Hólum koma vel út

  • 27. maí 2016
  • Fréttir
Fréttatilkynning frá Landsmóti.

Mannvirkjanefnd LH fundaði að Hólum í vikunni með fulltrúum frá Gullhyl, Hólaskóla og Sveitarfélaginu Skagafirði.

Úttekt var gerð á keppnisvöllum en þeir komu mjög vel út á WR móti sem haldið var þar um síðustu helgi auk nemasýningar. Keppendur sem nefndin hafði samband við voru almennt mjög ánægðir. 

Nýju áhorfendamanirnar koma sérlega vel undan vetri og hafa gróið vel.

Ýmsar lagfæringar voru þó ráðgerðar enda svæðið óðum að taka á sig endanlega mynd og mikill metnaður að gera svæðið sem best.

Gunnar Bragi Sveinsson Landbúnaðarráðherra hitti nefndina og kynnti sér aðstæður.

Nefndin vonast til að aðstæður verði með allra besta móti að Hólum!   

 

Á myndinni eru:

 

Frá Atvinnu og nýsköpunarráðaneytinu

Gunnar Bragi Sveinsson Sjárvarútvegs og Landbúnaðarráðherra

 

Frá Mannvikjanefnd LH:

Marteinn Magnússon

Rúnar Bragason

Indriði Karlsson

Hinrik Bragason

Frá Gullhyl

Jónína Stefánsdóttir

Skapti Steinbjörnsson

Eysteinn Steingrímsson

 

Frá Hólaskóla

Sveinn Ragnarsson

 

Frá sveitarfélaginu Skagafirði

Ingvar Páll Ingvarsson

Indriði Þór Einarsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link