Minnum á umsóknarfrest í Framhaldsskólanefndina
„Við viljum minna á að umsóknarfrestur um þátttöku í Framhaldsskólanefndinni í hestaíþróttum er til 31.október næstkomandi. Í nefndinni kemur saman ungt hestafólk sem stundar nám við framhaldsskóla landsins og skipuleggjum við saman hið árlega framhaldsskólamót í hestaíþróttum. Þar er skólum frá öllu landinu boðin þáttaka. Störf nefndarinnar eru fjölbreytt og skemmtileg. Við auglýsum því eftir fólki sem hefur áhuga á að starfa í nefndinni í vetur.
Í umsókninni þurfa helstu upplýsingar að koma fram; fullt nafn, aldur, símanúmer, skóli og af hverju þið hafið áhuga á að vera í nefndinni. Upplýsingar umfram þessar eru einnig vel þegnar. Umsóknir þurfa að berast inn fyrir þann 31. október næstkomandi á[email protected].
Við í nefndinni hvetjum hestafólk í mennta- og framhaldsskólum landsins sem hafa áhuga á keppnum og mótshaldi að sækja um og taka þátt í starfinu með okkur.
Ef einhverjar spurningar vakna, getið þið haft samband í síma 847-8061 (Thelma Harðardóttir) eða sent e-mail á okkur.
Ekki vera feimin, hlökkum til að heyra í ykkur!“
Framhaldsskólanefndin í hestaíþróttum 2015-2016
Styttu haustið með EiðfaxaTV