Reiðmaðurinn – Umsóknarfrestur til 15. júní nk

  • 10. júní 2020
  • Fréttir

Nú stendur yfir umsóknarfrestur fyrir Reiðmanninn og er hægt að skila inn umsóknum til 15. júní nk.

Reiðmaðurinn er nám ætlað fróðleiksfúsum reiðmönnum og áhugafólki um reiðmennsku sem vill auka við þekkingu sína og færni í reiðmennsku, hrossarækt og almennu hestahaldi en ekki síður fyrir þá reiðmenn sem vilja fara í þá vinnu að eflast sem manneskjur. Reiðmaðurinn er tveggja ára nám.

Námskeiðið er byggt upp á námi í reiðmennsku og er megináherslan lögð á það en einnig er þetta almennt nám um m.a. sögu og þróun hestsins, fóðrun hans, frjósemi og kynbætur. Námið er metið til samtals 33 eininga á framhaldsskólastigi (ECVET) og lýkur námskeiðsröðinni með sérstakri viðurkenningu frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Slík einingagjöf metur þá heildarvinnu sem ætlast er til að nemendur leggi fram og er háð því að nemendur hafi sótt 90% verklegra tíma í staðarnámi og standist námsmat. Að baki hverrar einingar er gert ráð fyrir 3 heilum vinnudögum nemandans, hvort sem um er að ræða fyrirlestra, verklega tíma eða heimanám. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.

Allar upplýsingar um Reiðmanninn er að finna hér á vef Landbúnaðarháskóla Íslands.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link