Háar einkunnir þarf til þess að eiga þátttökurétt á Landssýningu

  • 14. júní 2020
  • Fréttir

Fold frá Flagbjarnarholti er efst í flokki sjö vetra hryssa að svo stöddu. Knapi: Ævar Örn Guðjónsson mynd:Þórunn Hannesdóttir

Landssýning kynbótahrossa fer fram laugardaginn 27.júní á Rangárbökkum við Hellu. Þátttökurétt í sýningunni eiga tíu hæst dæmdu kynbótahross vorsins í öllum flokkum hryssna og stóðhesta, alls 80 bestu hross landsins. Hrossin verða kynnt ítarlega og verðlaunuð á grunni dóma vorsins.

Á Landssýningunni verða einnig afkvæmasýningar stóðhesta til 1.verðlauna fyrir afkvæmi og einnig til heiðursverðlauna.

Landssýningin verður í beinni útsendingu á þremur tungumálum hér á vef Eiðfaxa. Það er Félag Hrossabænda, RML og Horses of Iceland sem standa einnig að landssýningunni.

Nú er tveimur vikum í sýningum lokið og hafa alls 368 hross verið sýnd í fullnaðardómi. Spennan eykst um hvaða hross það eru sem komast á Landssýninguna og fá þannig kynningu um gjörvalla veröld í gegnum streymi auk þess að vera verðlaunuð.

Á morgun, mánudag, hefjast sýningar á fjórum stöðum en það er í Víðidal, á Hellu, Hólum og á Sörlastöðum og eftir þá viku verður ljóst hvaða hross mæta á Landssýninguna.

Við minnum eigendur kynbótahrossa að þeir geta tryggt sér myndband af sínu hrossi í kynbótadómi með því að senda email á [email protected] þar sem fram kemur nafn viðkomandi stóðhests eða hryssu og hvar hún var sýnd. Myndbandið kostar 15.000 + vsk en það er í bestu hugsanlegu gæðum og sáu fremstu fagmenn í faginu um upptöku á hverjum sýningarstað.

Stöðulistar í öllum aldursflokkum

Stóðhestar 7.vetra og eldri  
Nafn Aðaleinkunn
Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum 8,94
Rauðskeggur frá Kjarnholtum 8.87
Vegur frá Kagaðarhóli 8,81
Jökull frá Breiðholti í Flóa 8,81
Þór frá Torfunesi 8,73
Arthúr frá Baldurshaga 8,69
Skuggi frá Skagaströnd 8,65
Rjóður frá Hofi á Höfðaströnd 8,62
Hafliði frá Bjarkarey 8,62
Dropi frá Kirkjubæ 8,60

 

Stóðhestar 6.vetra  
Nafn Aðaleinkunn
Viðar frá Skör 8,89
Eldjárn frá Skipaskaga 8,72
Tumi frá Jarðbrú 8,61
Þristur frá Tungu 8,54
Sölvi frá Stuðlum 8,52
Styrkur frá Leysingjastöðum II 8,50
Hjörvar frá Rauðalæk 8,46
Bassi frá Sólheimum 8,44
Sindri frá Syðra-Velli 8,43
Goði frá Bjarnastöðum 8,40

 

Stóðhestar 5.vetra  
Nafn Aðaleinkunn
Leynir frá Garðshorni á Þelamörk 8,77
Atli frá Efri-Fitjum 8,54
Hávaði frá Haukholtum 8,45
Seðill frá Árbæ 8,44
Hannibal frá Þúfum 8,43
Kunningi frá Hofi 8,39
Pensill frá Hvolsvelli 8,38
Hervar frá Innri-Skeljabrekku 8,36
Kraftur frá Eystra-Fróðholti 8,35
Hilmir frá Hamarsey 8,35

 

Stóðhestar 4.vetra  
Nafn Aðaleinkunn
Gjafar frá Efri-Fitjum 8,21
Magni frá Stuðlum 8,18
Töfri frá Þúfum 8,18
Hlýr frá Garðshorni á Þelamörk 8,13
Blæsir frá Hægindi 8,10
Goði frá Oddgeirshólum 4 8,07
Sólfaxi frá Herríðarhóli 8,05
Óríon frá Strandarhöfði 8,05
Börkur frá Fákshólum 8,04
Dagur frá Austurási 8,03

 

Hryssur 7.vetra og eldri  
Nafn Aðaleinkunn
Fold frá Flagbjarnarholti 8,73
Hremmsa frá Álftagerði III 8,68
Hrönn frá Ragnheiðarstöðum 8,59
Hylling frá Akureyri 8,55
Næla frá Lækjarbrekku 2 8,53
Gefn frá Feti 8,47
Stjörnuspá frá Þúfum 8,45
Mardöll frá Hryggstekk 8,39
Skálmöld frá Þúfum 8,38
Sif frá Eystra-Fróðholti 8,38

 

Hryssur 6.vetra  
Nafn Aðaleinkunn
Askja frá Efstu-Grund 8,62
Þrá frá Prestsbæ 8,59
Svarta-Perla frá Álfhólum 8,54
Mirra frá Tjarnastöðum 8,51
Fjöður frá Flagbjarnarholti 8,46
Hávör frá Ragnheiðarstöðum 8,46
Polli frá Mið-Fossum 8,39
Hjör frá Völlum 8,37
Bryðja frá Barkarstöðum 8,36
Lokbrá frá Hafsteinsstöðum 8,35

 

Hryssur 5.vetra  
Nafn Aðaleinkunn
Álfamær frá Prestsbæ 8,55
Lydía frá Eystri-Hól 8,46
Dimma frá Hjarðartúni 8,38
Dimma frá Efsta-Seli 8,37
Hreyfing frá Akureyri 8,32
Hrund frá Efsta-Seli 8,31
Dússý frá Vakurstöðum 8,30
Fiðla frá Seljatungu 8,21
Skálmöld frá Miðfelli 2 8,18
Happadís frá Strandarhöfði 8,13

 

Hryssur 4.vetra  
Nafn Aðaleinkunn
Drift frá Austurási 8,24
Díva frá Austurási 8,13
Einstök frá Hvanneyri 8,12
Halldóra frá Hólaborg 8,08
Vala frá Hjarðartúni 8,07
Dögun frá Austurási 8,05
Rás frá Hólaborg 8,05
Valdís frá Auðsholtshjáleigu 8,03
Dagný frá Austurási 8,02
Flugsvinn frá Ytra-Dalsgerði 8,01
Fiðla frá Flagbjarnarholti 8,01

 

 

 

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link