Í dag er loka dagur til að senda inn umsókn

  • 15. júní 2020
  • Fréttir

Reiðmaðurinn er alhliða reiðnám fyrir hinn almenna hestamann sem vill auka við þekkingu sína og færni í reiðmennsku, hrossarækt og almennu hestahaldi en ekki síður fyrir þá hestamann sem vilja fara í þá vinnu að eflst sem manneskjur.

Námið nær yfir tvö ár og er kennt víða um landið. Nemendur verða hluti af 12 manna hópi sem hittir sinn reiðkennara í reiðhöll eina helgi í mánuði frá hausti og fram á vor. Yfir námstímann taka nemendur þátt í einni staðlota á hverri önn þar sem fjöldi hagnýtra fyrirlestra eru í boði í bland við fjölbreytta verkefnavinnu nemenda.

Nemendur fá tækifæri til að þróast í eigin reiðmennsku óháð fyrri reynslu og um leið að takast á við nýjar áskoranir og aukna ábyrgð á eigin reiðmennsku. Námið er í senn blanda af fræðilegri nálgun og verklegum æfingum þar sem fjölbreytt, hagnýtt og einstaklingsmiðað nám er haft í forgrunni. Nemendur takast á við sjálfa sig á persónulegum nótum þar sem unnið er markvisst að settum markmiðum þar sem vel menntaðir og þjálfaðir reiðkennarar leiðbeina út frá einstaklingsviðmiðum í þéttu aðhaldi sem hópastarf gefur.

Með því að smella hér má nálgast frekari upplýsingar

Smelltu hér til að senda inn umsókn

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link